Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Víknaslóðir – Um eyðivíkur, firði og fjallaskörð

29. júlí - 1. ágúst

Víknaslóðir með Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs
29. Júlí – 1. Ágúst
Brottför kl. 09:00 frá Fjarðarborg, Borgarfirði eystri
Erfiðleikastig: Erfitt

Fararstjórn: Þórdís Kristvinsdóttir. Lágmark 10 manns.

Víknaslóðir er göngusvæði sem engan svíkur. Þar blandast saman fallegir firðir, víkur og stórfengleg fjallasýn hvert sem litið er. Í þessari ferð má segja að göngufólk tipli yfir það helsta sem svæðið hefur upp á að bjóða en mælt er þó með því að koma aftur og skoða ýmsa ómissandi „útúrdúra“ sem verða óhjákvæmilega eftir.

Dagur 1: Ekið kl. 10:00 frá félagsheimilinu Fjarðarborg að upphafsstað göngu. Gengið frá Borgarfirði til Breiðuvíkur í gegnum Brúnavík. Gist ein nótt í skála ferðafélagsins í Breiðuvík.

Dagur 2: Gengið frá Breiðuvík í Húsavík. Hér er ýmist farið um Víknaheiði til Húsavíkur en ef vel viðrar er farið inn Litluvíkurdal, gengið í rótum Leirfjalls og þaðan yfir Herjólfsvíkurvarp til Húsavíkur. Gist eina nótt í skála ferðafélagsins í Húsavík.

Dagur 3: Gengið frá Húsavík, upp Neshálsinn og þaðan niður í Loðmundarfjörð. Ýmsar leiðir í boði, val fararstjóra fer eftir veðri og skyggni. Gist ein nótt í skála ferðafélagsins að Klyppstað.

Dagur 4: Gengið frá Loðmundarfirði og uppá Fitjar. Þaðan er farið um Kækjuskörð og Kækjudal til Borgarfjarðar.

Verð: 59.500/56.500 kr.

Innifalið: Skálagisting, trúss og fararstjórn.

GPS punktar

N65° 31' 37.944" W13° 49' 2.369"

Staðsetning

Fjarðarborg

Fleiri viðburðir