Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mugison í Seyðisfjarðarkirkju

28. júní kl. 20:00

Upplýsingar um verð

4500-5500
Kæri Seyðisfjörður - hlakka mikið til að spila aftur í Bláu Kirkjunni - alltaf svo gaman að koma í fjörðinn til ykkar, það er extra extra gaman, svo spenntur🥳
Ég er í geggjuðu Tónleika-Maraþoni, ætla að spila í 100 Kirkjum í 100 Póstnúmerum á innan við ári. Hef lengi verið heillaður af öllum þessum kirkjum, þær eru út um allt - í sveitunum, bæjum og öllum hverfum - allstaðar er kirkja - svo fallegar, dulafullar, kósý og spennandi.
Ég elska að spila í kirkjum það er eitthvað svo skemmtilega öfgafullt - einsog sum sönglög verði brothættari og fallegri og önnur ýkjast í hina áttina verða gróf og brussuleg. Ég er búinn að sérhanna svið, ljós og hljóðbúnað fyrir þetta tilefni. Verð einn með nokkra gítara, nikku, trommur og kirkjuorgel framtíðarinnar.
Hlakka mjög mikið til að hitta þig í Bláu Kirkjunni.
Stuðkveðja, Mugison.
Tónleikarnir eru um 60 mínútur
Verð:
4.500 kr í forsölu
5.500 kr við hurð

GPS punktar

N65° 15' 40.793" W14° 0' 37.906"

Fleiri viðburðir