Fara í efni

Aðgerðir og áherslur

Hér er fjallað um þær aðgerðir sem Áfangastaðastofa Austurlands getur unnið að í þeim tilgangi að færa landshlutann nær markmiðum sínum í ferðmálum. Aðgerðirnar tengjast helstu áherslum sem komu fram við vinnu áfangastaðaáætlunararinnar. 

Áherslur núgildandi áfangastaðaáætlunar:

  • Efnissköpun og upplýsingamiðlun
  • Uppbygging
  • Gæði og fagmennska
  • Öryggi, aðgengi og stýring
  • Samtal og samvinna
  • Samfélagið og fólkið

Áherslur

     

Aðgerðir í ferðaþjónustu á Austurlandi

Að aðgerðunum koma m.a. Austurbrú, Íslandsstofa, Ferðamálastofa, sveitarfélög, samstarfsaðilar, SSA, Vegagerðin og einkaaðilar. Árlega er fundað með viðeigandi aðilum, forgangsraðað og hvernig vinna á að verkefnum úr áfangastaðaáætlun að ári hverju.

Byggja upp og viðhalda gönguleiðum og stígum 

Markvisst viðhald og uppbygging gönguleiða og stíga með áherslu á öryggi, náttúruvernd og góða upplifun gesta.

 

Þróa fjölbreyttar leiðir fyrir hjólreiðar, reið- og skíðafólk

​Móta og efla sérhæfðar og fjölbreyttar leiðir fyrir mismunandi útivistargreinar sem auka aðdráttarafl svæðisins allt árið og dreifa álagi ferðamanna.​

 

​Uppfæra kortlagningu útivistarleiða

Samræma og uppfæra kort, stafrænar lausnir og upplýsingaveitur um útivistarleiðir til að bæta aðgengi, skipulagningu ferða og öryggi gesta.

Bæta áningarstaði og aðstöðu við vegi​

Efla þjónustu og innviði á áningarstöðum, svo sem salerni, upplýsingaskilti, bílastæði og göngustíga, með sjálfbærni, hönnun og notendavænni upplifun að leiðarljósi.​

​

Þróa varning og upplifanir tengdar útivistarleiðum​

Byggja upp samræmda ímynd og frásögn í kringum útivistarleiðir, m.a. í tengslum við skíðasvæði, hlaupa- og hjólaleiðir og náttúruperlur Austurlands, til að styrkja sérstöðu svæðisins.​

​

Þróa vörur, upplifanir og áfangastaði byggða á náttúru ​

Stuðla að uppbyggingu náttúrutengdra vara og upplifana með áherslu á ábyrgð, gæði og góða hönnun.​
​

Styrkja fyrirtæki og frumkvöðla á svæðinu​

Efla nýsköpun og vöruþróun í ferðaþjónustu með markvissum stuðningi, samstarfi og aðgengi að fjármögnun sem leiðir til nýrra hugmynda og aukinnar verðmætasköpunar.​

Skilti, aðgengi og öryggismál

 

Hvetja til umbóta í leiðsögn, aðgengi og öryggi á ferðamannastöðum með áherslu á samræmd skilti, aðgengilega aðkomu og greinargóðar upplýsingar.​

 

Styrkja tengsl ferðaþjónustu, nýsköpunar og matvælaframleiðslu​

Stuðla að sterkari tengslum milli ferðaþjónustu, skapandi greina og matvælaframleiðslu til að auka verðmætasköpun og sérstöðu Austurlands​

Styðja við smáframleiðendur sem vinna með hráefni landshlutans​

Hvetja til aukinnar nýtingar staðbundins hráefnis og styðja við smáframleiðendur.

Fjölga veitingastöðum með áherslu á staðbundið hráefni

Stuðla að fjölbreyttara framboði veitingastaða sem leggja áherslu á mat úr heimabyggð og endurspegla matarhefðir og nýsköpun svæðisins.​

Efla skilning á tengslum neyslu, sjálfbærni og árstíðabundinna hráefna

Auka vitund um mikilvægi sjálfbærrar neyslu og notkunar árstíðabundins og staðbundins hráefnis í ferðaþjónustu og matarmenningu.​

Styðja við samstarf um matarmenningu Austurlands​

Hvetja til samvinnu um verkefni á borð við Austfirskar krásir og aðra viðburði sem styrkja ímynd svæðisins sem mataráfangastaðar.​

Hvetja til þverfaglegrar samvinnu menningar og ferðaþjónustu

Stuðla að auknu samstarfi menningarstofnana, skapandi greina og ferðaþjónustu til að þróa nýjar upplifanir og styrkja framboð og fjölbreytileika svæðisins.​

Þróa vörur og upplifanir í samstarfi við skapandi greinar

Hvetja til þróunar menningar- og upplifunartengdra vara, viðburða og verkefna sem byggja á menningararfi, listsköpun og sérstöðu Austurlands.​

Viðhalda og efla tengsl við menningararfinn

Stuðla að því að menningararfur Austurlands sé lifandi, aðgengilegur og opinn fyrir nýjum nálgunum og nýsköpun.​

Efling menningar sem hluta af ferðaþjónustu

Aukin áhersla verði lögð á að samþætta menningu markvisst við þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Sem hluti af þessari áherslu verði kannaður grundvöllur fyrir þróun sameiginlegrar menningartengdrar ferðaafurðar, til dæmis undir yfirskriftinni „Fornminjar á Austurlandi“. Slík nálgun gæti tengt saman fornleifasvæði, söfn, torfbæi og sögustaði í eina heildstæða upplifun.

 

Styðja við frumkvöðla og nýsköpun í skapandi greinum

 

Efla umhverfi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki í skapandi greinum með það að markmiði að styðja nýjar hugmyndir, samstarf og langtímaþróun.​