Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044

Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044 markar sameiginlega framtíðar-sýn Fjarðabyggðar, Fljótsdalshrepps, Múlaþings og Vopnafjarðarhrepps fyrir landshlutann. Tilgangurinn er að stilla saman stefnu sveitarfélaganna á sviði umhverfis, efnahags, samfélags og menningarog tryggja þar með sjálfbæra þróun, komandi kynslóðum í hag. Svæðisskipulagið er langtíma stefnumarkandi áætlun sem framfylgt verður með skipulagsáætlunum hvers sveitarfélags og öðrum áætlunum SSA.
Svona verður Austurland 2044:
Á Austurlandi er samheldið fjölmenningarsamfélag með lífsgæði forgrunni. Litríkt listalíf, ríkur menningararfur og áhugaverðir staðir á fjörðum, héraði og hálendi veita gnótt tækifæra til að upplifa sannkölluð ævintýri. Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf byggir á sjálfbærri nýtingu auðlinda og þekkingu og sköpunarkrafti íbúa.
Hægt er að skoða Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044 hér
