Efling Egilsstaðaflugvallar
Austurbrú tekur þátt í verkefninu Nature Direct í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands, ISAVIA og Íslandsstofu með áherslu á að efla vetrarferðamennsku og bæta framboð á gistingu, afþreyingu og þjónustu.
Austurbrú vinnur í nánu samstarfi við innlenda og erlenda ferðaþjónustuaðila að þróun og eflingu ferðaþjónustu á svæðinu, með það markmið að styrkja stöðu Austurlands sem heilsársáfangastaðar. Samstarfið er lykilþáttur í því að efla fluggáttina um Egilsstaðaflugvöll, þar sem góð tenging við náttúru, afþreyingu og þjónustu er tryggð við lendingu.

Aðgerðir
* Aðgerðir áfangastaðaáætlunar eru samvinna margra aðila sem vinna að verkefnunum á ólíkan hátt. Að aðgerðunum koma m.a. Austurbrú, Íslandsstofa, Ferðamálastofa, sveitarfélög, samstarfsaðilar, SSA, Vegagerðin og einkaaðilar.
Markaðs- og kynningarefni
Unnið er að gerð markaðs- og kynningarefnis sem tengir flugvöllinn beint við áfangastaðinn Austurland. Áhersla er lögð á að kynna sérstöðu svæðisins, helstu upplifanir og aðgengi með beinu flugi frá meginlandi Evrópu.
Tengslamyndun
Markviss tengslamyndun við ferðaskrifstofur, flugfélög og aðra söluaðila með þátttöku á ferðasýningum og vinnustofum. Jafnframt er komið að skipulagningu kynningarferða (FAM-ferða) fyrir ferðaskrifstofur, blaðamenn og áhrifavalda til að auka þekkingu og áhuga á áfangastaðnum.
Samstarf
Unnið er í nánu samtali við stjórnvöld og lykilaðila um þróun verkefnisins, m.a. að varðar fjárveitingar, samgönguáætlanir og langtímastefnu. Markmiðið er að tryggja samræmda nálgun, pólitískan stuðning og stöðugan framgang verkefnisins.
Vörumerkjaþróun
Markviss vörumerkjaþróun fyrir Egilsstaðaflugvöll með það að markmiði að styrkja ímynd hans sem alþjóðlegs flugvallar. Unnið er að skýrri staðsetningu flugvallarins, samræmdu ímyndarskyni og skilaboðum, í nánu samstarfi við Isavia, til að styðja við uppbyggingu flugsamgangna.