Fara í efni

Vetrarævintýri

Markmið verkefnisins er að þróa og koma á fót vetrarferðaleið um Austurland sem sameinar náttúruupplifun, útivist,menningu og matarmenningu svæðisins. Leiðin mun gefa gestum færi á að upplifa víðáttumikla firði, há fjöll, snæviþökkt hálendi, hreindýr, norðurljós, skíðasvæði, jeppaferðir, snjóþrúgulabb, náttúruperlur eins og Stuðlagil, heitj arðböð eins og Vök Baths, matarupplifun, auk tengingar við listir og handverk.

Verkefnið felur í sér kortlagningu leiðarinnar, þróun upplifunarbundinna áfangastaða og afþreyingar, auk markaðssetningar á leiðinni fyrir ferðamenn á innlendum og erlendum mörkuðum. Jafnframt er stefnt að því að útbúa heildstæða vörumerkjaímynd sem undirstrikar sérstöðu vetrarupplifunar á Austurlandi.

Þróunin mun leggja áherslu á sjálfbærni, náttúruvernd og tengingu við menningu svæðisins, þannig að ferðaleiðinverði bæði upplýsandi og örvandi fyrir gesti, án þess að skerða gæði landslags eða náttúru. Með verkefninu skapasttækifæri til að styrkja ímynd Austurlands sem áfangastaðar fyrir vetrarupplifanir.