Fara í efni

Samstarfsaðilar

Samstarfsaðilar er þróunarverkefni á vegum Áfangastaðastofu Austurlands sem miðar að því að efla ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu, menningu og atvinnulíf á Austurlandi í nánu og heildstæðu samstarfi. Verkefnið byggir á stefnu Áfangastaðarins Austurlands og einkennismerkinu Austurlandsstjörnunni  sem sameinar helstu áherslur landshlutans: náttúru, vetur, leiðangra, mat, sköpun og menningu.

Með sameiginlegri stefnu, markvissri uppbyggingu upplifana og þjónustu og öflugu samstarfi styrkir verkefniðstöðu Austurlands sem fjölbreytts og skapandi áfangastaðar. Lögð er áhersla á sjálfbæra þróun og aðferða þjónustan vaxi í takt við vilja heimafólks.

Samstarfsaðild veitir fyrirtækjum:

  • aukinn sýnileika á VisitAusturland.is, VisitIceland.is og öðrum opinberum vettvangi
  • aðgang að markaðsefni, myndabankaog þátttöku í fjölmiðla- og kynningarverkefnum
  • tengslanet og fræðslu í gegnum fundi, vinnustofur og viðburði
  • sérfræðiaðstoð Austurbrúar á sviði markaðssetningar, rannsókna, nýsköpunar og styrkumsókna
  • stuðning við smá- og matvælaframleiðslu í gegnum Matarauð Austurlands og Matarmót

Heildarmarkmið verkefnisins er að tryggja aðferða þjónusta og tengd starfsemi á Austurland iþróist af ábyrgð, í sátt við samfélagið og með styrkari framtíðarsýn fyrir andshlutann.

 

 

Aðgerðir

* Aðgerðir áfangastaðaáætlunar eru samvinna margra aðila sem vinna að verkefnunum á ólíkan hátt. Að aðgerðunum koma m.a. Austurbrú, Íslandsstofa, Ferðamálastofa, sveitarfélög, samstarfsaðilar, SSA, Vegagerðin og einkaaðilar.

 

Stuðningur og efling klasa

Til dæmis matarklasa, með reglulegum fundum, tengslaneti og stuðningi við sameiginleg verkefni. Jafnframt er veitt aðstoð við styrkumsóknir og vöruþróun til að flýta fyrir nýsköpun og framkvæmdum innan klasanna.

 

Bæta gæði upplifana og þjónustu

Með samræmdum upplýsingum, gæðaviðmiðum og fagmennsku. Veita fyrirtækjum sem vilja innleiða umhverfis- og gæðavottanir stuðning. Jafnframt er lögð áhersla á að efla hæfni stjórnenda og starfsfólks í ferðaþjónustu með rafrænum námskeiðum og fræðslu frá Austurbrú, Hæfnisetri ferðaþjónustunnar og öðrum fræðsluaðilum.

Styrkja og stækka hóp samstarfsaðila Austurbrúar

Með markvissri uppbyggingu samskipta og samstarfs. Því er m.a. sinnt með reglulegum morgunfundum, samstarfssamningum og árlegum haustfundi sem stuðlar að betra upplýsingaflæði, sameiginlegri stefnumótun og öflugri tengslamyndun innan ferðaþjónustunnar og tengdra greina.

 

Styðja við og þróa heilsársferðaþjónustu

Með því að hvetja til lengri opnunartíma, fjölbreyttara framboðs og aukinnar afþreyingar á öxlum og yfir vetrartímann. Til að skapa stöðugri starfsemi, jafna árstíðasveiflur og tryggja að gestir geti notið fjölbreyttra upplifana óháð árstíma.

 

Áhersla er lögð á að skapa umræðu og vitund

Um mikilvægi hönnunarhugsunar í þróun áfangastaða og innviða ferðaþjónustunnar. Með því að hvetja til samstarfs við fagfólk á sviði hönnunar og arkitektúrs má stuðla að faglegri, sjálfbærri og heildstæðri nálgun, sem eykur gæði og styrk verkefna til lengri tíma.

 

Skapa vettvang og veita hvatningu

Fyrir samstarfsaðila til að segja persónulegar sögur af starfsemi sinni , tengslum við Austurland og svæðið sjálft og þannig styrkja sameiginlega ímynd áfangastaðarins.