Fara í efni

Matarauður Austurlands

Matarauður Austurlands er þróunarverkefni á vegum Austurbrúar sem hefur verið unnið í nánu samstarfi við hagaðila á Austurlandi frá haustinu 2019. Meginmarkmið verkefnisins er að halda utan um matvælaframleiðendur ásvæðinu, efla samstarf milli framleiðenda og þeirra aðila sem selja, miðla og reiða fram matvæli, auk þess að stuðla að aukinni verðmætasköpun innan greinarinnar. Jafnframt er lögðrík áhersla á að auka sýnileika matvælaframleiðenda í fjórðungnum, bæði innan svæðisins og út á við.

Einn af lykilþáttum verkefnisins er árlegt Matarmót, þar sem matvælaframleiðendur og framleiðendur annarra afurða unnar úr hráefnum Austurlands kynna vörur sínar fyrir almenningi.Gestum gefst þar tækifæri til að fræðast um framleiðsluna,smakka afurðir og kaupa vörur beint frá framleiðendum. Í tengslum við Matarmót hefur jafnframt verið staðið fyrir málþingum, fyrirlestrum og fræðslu sem tengist matvælaframleiðslu, nýtingu náttúruauðlinda og sjálfbærri verðmætasköpun.

Matarauður Austurlands heldur úti heimasíðu þar sem finna má samræmdar upplýsingar um matvælaframleiðendur á svæðinu, veitingastaði sem leggja áherslu á staðbundið hráefni, auk upplýsinga um Matarmót og aðra viðburði tengda verkefninu. Verkefnið hefur jafnframt staðið fyrir fjölbreyttum námskeiðum, námsleiðum, fyrirlestrum og annarri fræðslu sem miðar að því að styrkja fagþekkingu og þróun innan greinarinnar. Í því samhengi hefur skapast mjög gott og markvisst samstarf við Samtök smáframleiðenda matvæla og verkefnið Beint frá býli.

Þátttaka framleiðenda í verkefninu hefur aukist jafnt og þétt fráupphafi og með henni hefur sýnileiki og samvinna innan matvælageirans á Austurlandi styrkst til muna