Vetrarferðaþjónusta á Seyðisfirði

Verkefnið Vetrarferðaþjónusta á Seyðisfirði eða Seyðisfjörður allt árið hefur þann tilgang að efla Seyðisfjörð sem atvinnusvæði.
Svæðið, fjörðurinn, byggðin og skíðasvæðið fyrir ofan bjóða upp á mikla möguleika yfir vetrartímann og bæta þannig framboð á svæðinu með samvinnu fyrirtækja þar.
Greina þarf möguleika og áhættu í uppbyggingu ferðamennsku með sérstaka áherslu á svæðið í Stafdal, móta sýnina, þróa og tryggja framboð og greina hvaða aðgerðir þurfi að koma til.
Væntanlegur árangur og áhrif verkefnisins eru vetrarferðaáætlun fyrir Seyðisfjörð með aðgerðaráætlun sem felur m.a. í sér samstillingu til að tryggja framboð þjónustu og afþreyingar, áætlanir um uppbyggingu og kynningarefni og kynningarátak sem beinist að ferðaþjónustuaðilum og fjárfestum.
Verkefnið stuðlar að bættu atvinnuástandi á Seyðisfirði þar sem það dregur úr árstíðabundnum sveiflum í atvinnuframboði. Það stuðlar að aukinni verðmætasköpun með því að skapa ný tækifæri til tekjuöflunar og atvinnu í heimabyggð. Aukin fjölbreytni í atvinnulífi er ein meginstoð byggðafestu sem er nauðsynleg samfélögum á borð við Seyðisfjörð, sem standa frammi fyrir miklum áskorunum í atvinnulífi.
Verkefnið fellur vel að Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029 þar sem áhersla er á að tryggja ferðaþjónustu allt árið um kring, til að auka fjölbreytni í atvinnulífi og stuðla að nýsköpun. Verkefnið tekur mið af Heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna.
