Fara í efni

Framtíðarsýn og markmið

Framtíðarsýn:

Að Austurland verði þekkt fyrir sjálfbæra og vel skipulagða uppbyggingu áfangastaða þar sem náttúra, samfélag og ferðaþjónusta eru í jafnvægi, náttúran er vernduð og aðgengi, öryggi og gæði upplifunar gesta stuðla að öflugri heilsársferðamennsku.“

 

 

Markmið:

Markmið Áfangastaðaáætlunar Austurlands eru hér sett fram og endurspegla þessa framtíðarsýn. 

Sjálfbær og ábyrg þróun áfangastaðarins

Að ferðaþjónusta á Austurlandi dafni í takt við umhverfis-, efnahags-, og samfélagsleg sjónarmið, stuðli að jákvæðum áhrifum á búsetugæði, atvinnusköpun og verndun náttúru og menningar, og tryggi jafna dreifingu ferðamanna um svæðið til að sporna við álagi og styðji við sjálfbæra uppbyggingu allra svæða landshlutans.

Austurland sem heilsársáfangastaður

Að gestir hafi tækifæri til að upplifa Austurland allt árið, kjósi að dvelja lengur, koma aftur og njóta góðrar og aðgengilegra samgangna sem styðja við þróun heilsársferðaþjónustu.

Samstarf, fræðsla og innviðaþróun sem styrkir atvinnugreinina

Efla samstarf, stuðning og þekkingu innan ferðaþjónustunnar, þróa innviði sem nýtast bæði íbúum og gestum og tryggja áframhaldandi framgang verkefna Áfangastaðastofu Austurlands.

Vörumerki og upplifun áfangastaðarins

Að styrkja vörumerki Austurlands með markvissri kynningu og markaðssetningu og byggja upp áfangastað sem mætir þörfum og væntingum bæði íbúa og gesta.