Baugur bjólfs
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Öryggi
- Aðgengi
- Gróðurvernd
Stutt verkefnalýsing
Verkefnið felst í að bæta aðgengi og auka öryggi gesta á nýjum ferðamannastað, Baugi Bjólfs, sem staðsettur er í hlíðum Bjólfs á Seyðisfirði. Útbúið verður nýtt bílastæði um 1 km neðan við bauginn, auk þess sem sett verða upp upplýsingaskilti og öryggismerkingar við bílastæði, á gönguleið og við Bauginn. Áætluð verklok eru sumarið 2026.
Gufufoss
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Öryggi
- Aðgengi
Stutt verkefnalýsing
Lagður hefur verið 3 km langur göngustígur frá bænum og upp að vinsælum áfangastað ferðamanna, Gufufossi á Seyðisfirði. Hingað til hefur meiri hluti gangandi vegfarenda gengið meðfram þjóðveginum með tilheyrandi slysahættu. Göngustígurinn verður malbikaður sumarið 2026.
Héraðssandur
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Öryggi
- Aðgengi
Stutt verkefnalýsing
Vegur, bílastæði og merkingar
Helstu verkþættir
Djúpivogur
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Öryggi
- Aðgengi
Stutt verkefnalýsing
Bílastæði við svörtu sanda, merkingar á gönguleið og Búlandsnesi
Helstu verkþættir
Eyvindará í Selskógi
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Aðgengi
Stutt verkefnalýsing
Göngubrú yfir í Taglarétt
Helstu verkþættir
Fardagafoss
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Aðgengi
- Öryggi
- Gróðurvernd
Stutt verkefnalýsing
Verkefnið snýr að því að bæta aðgengi og aðstöðu á gönguleiðinni að Fardagafossi við Egilsstaði sem er ein af vinsælli gönguleiðum heimamanna og ferðamann á Fljótsdalshéraði. Gönguleiðin verður malborin, styrkt og lagfærð til að koma í veg fyrir vatns- og jarðvegsrof. Settar verða upp upplýsinga- og öryggismerkingar og tvær göngubrýr endurnýjaðar. Áætluð verklok eru 2026.
Eggin í gleðivík
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Aðgengi
- Öryggi
Stutt verkefnalýsing
Gangstétt og göngustígur
Helstu verkþættir
Útsýnisstaður við Gufufoss í Seyðisfirði
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Aðgengi og upplifun
Stutt verkefnalýsing
Gufufoss er einn mest sótti ferðamannastaður á Austurlandi. Til stendur að útbúa lágstemmda og aðgengilega útsýnisaðstöðu neðan við fossinn.
Útsýnispallar og bílastæði við Fardagafoss á Fljótsdalshéraði (2. áfangi)
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Öryggi
- Aðgengi
- Gróðurvernd
- Upplifun
Stutt verkefnalýsing
Ein vinsælasta gönguleið ferðamanna og heimamanna á Fljótsdalshéraði er gönguleiðin upp að Fardagafossi. Til stendur að stækka bílastæðið svo það anni betur þeim fjölda sem sækir svæðið og setja niður útsýnispalla á tveimur útsýnisstöðum á leiðinni til að auka öryggi göngufólks.
Endurbætur á gönguleið og merkingum á Búlandsnesi við Djúpavog
Umsjónaraðili
Múlaþing
Markmið
- Öryggi
- Aðgengi
Stutt verkefnalýsing
Verkefnið snýr að því að bæta aðgengi og útivistaraðstöðu á Búlandsnesi við Djúpavog með því að lagfæra um 8 km gönguleið sem liggur frá flugbraut í jaðri þorpsins og að þéttbýlinu við Djúpavog. Laga þarf undirlag á köflum og uppfæra merkingar og skilti. Sett verða niður ný fróðleiksskilti með QR kóðum.