Um Austurland
Austurland er heiti landsfjórðungsins sem er austasti hluti Íslands og er um um 15.792 km2 að flatarmáli og einkennist af fjölbreyttu landslagi frá jökli til sjávar. Svæðið er strjábýlt með um 11.300 íbúa sem búa aðallega í sjávarbyggðum og dreifðum byggðarkjörnum. Þrátt fyrir fámenni eru samfélögin á Austurlandi kraftmikil og skapandi.
Austurland einkennist af litlum þorpum, stórbrotinni strandlínu, þröngum fjörðum, fossum og fjöllum. Náttúra Austurlands er margbrotin með gróna dali, víðerni og jökla, þar á meðal Vatnajökul, stærsta jökul Evrópu og fjölskrúðugt dýralíf. Svæðið býður upp á marga möguleika á útivist, gönguleiðum og náttúru upplifanir, auk menningararfs sem mótast hefur af sjávarútvegi, landbúnaði og iðnaði.
Ferðaþjónusta á Austurlandi byggir á náttúru, menningu og rólegu umhverfi. Þrátt fyrir mikla árstíðasveiflu og mestan fjölda ferðamanna yfir sumartímann, býður Austurland upp á gríðarleg tækifæri til ferðamennsku allt árið, ekki síst yfir vetrartímann.
