Aðgerðir


Að aðgerðunum koma m.a. Austurbrú, Íslandsstofa, Ferðamálastofa, sveitarfélög, samstarfsaðilar, SSA, Vegagerðin og einkaaðilar. Árlega er fundað með viðeigandi aðilum, forgangsraðað og hvernig vinna á að verkefnum úr áfangastaðaáætlun að ári hverju.
Viðhorfskönnun meðal heimafólks
Framkvæmd er regluleg viðhorfskönnun meðal heimafólks til að meta áhrif ferðaþjónustu og afstöðu íbúa til þróunar hennar. Niðurstöður eru nýttar í samtal við sveitarfélög og við mótun stefnu og aðgerða, með það að markmiði að ferðaþjónustan þróist í sátt við samfélagið
Lögð er áhersla á að innleiða hönnunarhugsun við uppbyggingu nýrra áfangastaða og innviða. Sveitarfélög eru hvött til að standa fyrir hönnunarsamkeppnum og efla samstarf við arkitekta og faghönnuði, meðal annars í tenglsum við umsóknir til Framkvæmdarsjóðs ferðaþjónustuaðila, til að tryggja faglegar, sjálfbærar og vandaðar lausnir.
Sveitarfélög eru hvött til að móta og innleiða skýra ferðamálastefnu. Markmiðið er að öll sveitarfélög á Austurlandi hafi ferðamálastefnu sem samræmis áfangastaðaáæltun Austurlands og styður við sameiginlega framtíðarsýn landshlutans.
Gæta hagsmuna Austurlands í samgöngumálum í samstarfi við sveitarfélög
Samtök sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) og aðra hagsmunaaðila, með áherslu á bætt aðgengi, öryggi og samhæfingu samgangna við þróun ferðaþjónustu..
Unnið er með áfangastöðum, höfnum og sveitarfélögum
Að því að jafna dreifingu gesta skemmtiferðaskipa þannig að komur þeirra styðji við ferðaþjónustu á svæðinu, skapi raunveruleg verðmæti fyrir nærsamfélög og séu í samræmi við þarfir og hagsmuni íbúa .