Fara í efni

Gestirnir okkar

Tækifæri felast í því að efla gæði, auka samtal og styrkja samvinnu innan Austurlands og á milli landshluta til að byggja upp öfluga og sjálfbæra ferðaþjónustu. Við greiningu á markhópum fyrir Austurland var stuðst við rannsóknir Íslandsstofu á alþjóðlegum markhópum í ferðaþjónustu, og voru niðurstöður þeirra hafðar til hliðsjónar við mótun markhópa. Með hliðsjón af sérstöðu Austurlands, sem einkennist af víðernum, fjölbreyttri náttúru og menningarlegri sérstöðu, var talið skynsamlegt að horfa til þeirra markhópa sem Íslandsstofa hefur skilgreint sem álitlega á erlendum lykilmörkuðum, enda falla upplifanir á Austurlandi vel að áhuga þeirra.

 

Þessir markhópar eiga það sameiginlegt að vera umhugað um umhverfið og sækja í náttúru og menningu (Íslandsstofa, 2022). Þessi gildi eiga vel við framtíðarsýn ferðaþjónustunnar á Austurlandi. Nánari upplýsingar um markhópana er að finna í nýjustu markhópagreiningu Íslandsstofu.

 

 

Markhópar