Fara í efni

Markaðssetning

 

 

Markaðssetning Austurlands byggir á ósvikinni nálgun þar sem sögur, upplifun og fólk eru í forgrunni. Við miðlum ekki vörum heldur ekta augnablikum sem endurspegla sérstöðu svæðisins, fjölbreytileika þess og sterka tengingu við náttúru og menningu. Í samskiptum erum við heiðarleg, opin og skapandi, með virðingu og gestrisni að leiðarljósi. Með ástríðu og stolti segjum við sögur sem fara dýpra en yfirborðið og skapa varanleg tengsl við Austurland.