Fara í efni

Náttúruperlur

Margar af helstu náttúruperlum Austurlands njóta verndar og eru því undir umsjón stofnana á borð við Náttúruverndarstofnun og Vatnajökulsþjóðgarð. Einnig er mismunandi hver ber ábyrgð á einstökum stöðum; sum svæði eru þjóðlendur, önnur í eigu ríkisins, sveitarfélaga eða einkaaðila. Af þeim sökum getur verið áskorun að vinna að skipulagðri uppbyggingu nema sameiginlegur vilji sé til staðar um að vernda svæðin. Mikilvægt er að þróa aðstöðu þannig að náttúran verði fyrir sem minnstum áhrifum á sama tíma og upplifun og öryggi gesta er tryggt.

Náttúruperlur sem sérkenni Austurlands

Sérstaða Austurlands felst meðal annars í fjölbreyttri og ólíkri náttúru ásamt fjölmörgum áfangastöðum sem laða að ferðafólk. Margir þessara staða eru aðgengilegir og auðvelt fyrir gesti að njóta þeirra. Samspil náttúrunnar og þjónustuframboðs á svæðinu gerir ferðamönnum kleift að upplifa margt af því besta sem Ísland hefur upp á að bjóða.

Ferðamannastaðir styrkja byggðir

Óspillt náttúra og útivist tengd henni er ein helsta ástæða þess að ferðamenn velja að heimsækja Ísland. Ferðaþjónustan byggir að stórum hluta á aðdráttarafli slíkra staða. Til að njóta þeirra nýta ferðamenn jafnframt ýmsa þjónustu, svo sem gistingu, veitingar, verslanir og afþreyingu. Uppbygging vinsælla áfangastaða getur því stuðlað að aukinni atvinnu, fjölgun íbúa og hærri tekjum sveitarfélaga. Þannig getur þróun góðra ferðamannastaða verið tækifæri til framfara fyrir byggðirnar.

 

Á ferðavef Austurlands má finna upplýsingar um helstu náttúrustaði sem ferðamenn geta heimsótt á svæðinu. Ekki er um tæmandi lista að ræða.