Miðlar
Austurbrú rekur ferðavef landshlutans, VisitAusturland.is, þar sem ferðamenn geta nálgast ýmsar upplýsingar um svæðið, m.a. um þjónustu, afþreyingu og áhugaverða áfanga- og áningarstaði um allt Austurland. Á vefnum má einnig finna gagnlegar upplýsingar fyrir erlenda ferðamenn um hvernig skynsamlegast er aðferðast um Ísland á ólíkum árstímum.
Frá árinu 2024 hafa ferðavefir sveitarfélaganna verið sameinaðir vef VisitAusturland. Austurbrú heldur einnig utan um samfélagsmiðla í tengslum við ferðavefinn og er hægt að fylgjast með VisitAusturland bæði á Facebook og Instagram.
