Vörumerki áfangastaðarins
Austurland einkennist af litlum þorpum, stórbrotinni strandlínu, þröngum fjörðum, fossum og fjöllum. Náttúran er alltaf nálæg og landslagið hrífandi. Áfangastaðurinn býður upp á framúrskarandi útivistarmöguleika allt árið um kring.
Úrval gönguleiða og sumar með þeim bestu í Evrópu, stórskorið og spennandi hálendi, Vatnajökulsþjóðgarður, útsýnistúrar um yfirþyrmandi landslag og meðfram strönd við jaðar Norður Atlantshafsins.
Lífstílllinn á Austurlandi er afslappaður en virkur í nánum tengslum við landslagið og sviptingar í náttúrunni. Leiftrandi sköpunarkraftur einkennir samfélögin og færir fólk saman. Tengslin við menningararfleifðina eru sterk, það er alltaf saga að segja og nýjar sögur verða til.


Gildi
Hvað okkur finnst og hvað er mikilvægast fyrir okkur. Hvað vörumerki okkar á að standa fyrir til lengri tíma og hvað greinir okkur frá öðrum áfangastöðum.
Einstakt
Satt
Sameining
Virðing
Fjölbreytni
Jafnvægi
Persónuleiki
Hvernig við veljum að tjá okkur í samskiptum og hvernig við viljum láta hugsa um okkur.
Ósvikin
Heiðarleg
Fagnandi
Heillandi
Opin
Skapandi
Skilaboð & myndefni
Í samskiptum og miðlun segjum við sannar og ekta sögur sem endurspegla sérstöðu, fjölbreytileika og uppruna Austurlands. Með áherslu á fólk, ástríðu og ólík sjónarhorn gerum við áfangastaðinn lifandi og áhugaverðan allt árið um kring.
UPPLIFUN
Við markaðssetjum ekki vörur heldur miðlum við ekta upplifun.
Í DAG
Miðlun okkar um Austurland er í takt við líðandi stund.
LENGRA
Við lýsum ekki bara myndinni heldur förum við handan við það augljósa og segjum sögurnar sem búa að baki henni.
ÁSTRÍÐA
Það er bit eða dýpt í tjáskiptum okkar sem nær til fólks þannig að ástríðan skín i gegn.
STOLT
Við erum stolt þegar við tjáum okkur um Austurland.
VIRÐING
Við getum verið full sjálfstrausts í miðlun okkar en aldrei hrokafull eða ókurteis. Við sýnum ætluðum viðtakendum og Austurlandi virðingu. Við vanmetum ekki gáfur viðtakenda okkar.
GESTRISNI
Við viljum vera vingjarnleg og mannleg. Markmið okkar er að skapa langtíma sambönd og samræður.
Myndefni: Við erum lifandi, segjum sögur, erum virk, erum saman og sýnum ekki myndefni sem gæti ýtt undir óæskilega hegðun ferðamanna.


