Fara í efni

Sögustaðir

Austurland á sér ríka og fjölbreytta sögu sem endurspeglast í fjölmörgum sögustöðum, menningarminjum og sögulegum byggingum víðs vegar um svæðið. Saga svæðisins tengist meðal annars landnámi, verslunarsögu, sjávarútvegi, trúarlífi og menningu sem hefur mótað samfélög Austurlands í gegnum aldirnar. Þessir staðir eru mikilvægir fyrir varðveislu menningararfs svæðisins og skapa einnig tækifæri til menningartengdrar ferðaþjónustu.

Á Austurlandi eru einnig fjölmargar fornleifar, gamlir verslunarstaðir og sögulegar byggingar sem tengjast þróun sjávarútvegs, verslunar og byggðar á svæðinu. Þessir staðir gefa innsýn í daglegt líf fyrri kynslóða og hvernig náttúra og samfélag hafa mótað líf fólks á Austurlandi.

Sögustaðir og menningarminjar eru því mikilvægur hluti af upplifun ferðamanna á svæðinu og styðja við þróun menningar- og sögutengdrar ferðaþjónustu á Austurlandi.

Hér má sjá nokkra af sögustöðum Austurlands. Ekki er um tæmandi lista að ræða.

Bustarfell

Bustarfell

Einn best varðveitti torfbær landsins sem sýnir búsetuhætti fyrri alda. Í safninu eru nú yfir þúsund munir sem hver og einn á sína sögu og sál.

Franski spítalinn

Franski spítalinn

Safn á Fáskrúðsfirði sem segir frá frönskum sjómönnum sem stunduðu veiðar við Ísland á 19. og 20.öld.

Stríðsárasafnið

Stríðsárasafnið

Safn sem fjallar um hernámsárin á Íslandi og hlutverk Reyðarfjarðar í seinni heimstyrjöldinni.

Lindarbakki

Lindarbakki

Lítið og fallegt torfhús og eitt helsta kennileiti Borgarfjarðar Eystri. Lindarbakki er upphaflega byggður árið 1899 en hlutar hans hafa verið endurbyggðir.

Steinasafn Petru

Steinasafn Petru

Þekkt safn steina sem varð til úr einkasafni og hefur alþjóðlega sérstöðu. Ljósbjörg Petra hafði áhuga á fallegum steinum alla ævi, en byrjaði að safna þeim fyrir alvöru 1946.

Skriðuklaustur

Skriðuklaustur

Skriðuklaustur er forn klausturstaður frá miðöldum þar sem einnig stendur heimili rithöfundarins Gunnars Gunnarssonar. Þar er nú menningarsetur og veitingastaður.

Stapavík

Stapavík

Þar var umskipunarhöfn og er staðurinn nátengdur verslunarsögu Borgarfjarðar Eystri og Héraðs. Víkin er þverhnípt og var varningur fluttur í land af skipum með handknúnu spili en leifar þess standa enn í víkinni til minningar um þennan tíma.

Sænautasel

Sænautasel

Einstakur staður við friðsælt fjallavatn. Sænautasel er gamalt heiðarbýli þar sem hægt er að fræðast um aðbúnað og lífsbaráttu þeirra sem bjuggu í heiðinni.

Kjarvalshvammur

Kjarvalshvammur

Þar dvaldi Kjarval í tjaldi í tvö ár og reisti síðan kofa þar sem hann málaði margar af sínum frægustu myndum.