Greining á hegðun gesta, leitaráhuga og sýnileika Austurlands á netinu var unnin árið 2025 í samstarfi við markaðsstofuna Digido. Einnig var stuðst við gögn úr skýrslunni Seglar Austurlands 2022 frá Datera, þar sem gerð var úttekt á leitaráhuga tengdum ferðaleitarorðum fyrir Austurland.
Byggt á niðurstöðum greiningarinnar, ásamt mati ráðgjafa, voru fimm nýir staðir sem stóðu uppúr * (seglar) svæðisins: Klifbrekkufossar, Lækjavík (Stapinn í Stapavík), Eggin í Gleðivík, Stórurð og Hafnarhólmi.
Niðurstöður eru því ekki byggð á huglægu mati eða handvali, heldur mælanlegum gögnum, greiningu og faglegum ráðleggingum sérfræðinga. Þær endurspegla stöðu svæða hverju sinni hvað varðar áhuga, leit og stafræna sýnileika. Ef greiningin sýnir að seglar eru að mestu leyti staðsettir í einu sveitarfélagi, en færri í öðru, þá felur það ekki í sér að önnur svæði skorti möguleika. Þvert á móti gefur slíkt mikilvægar vísbendingar um hvar tækifæri liggja til frekari vinnu, t.d. með markvissari kynningu, uppbyggingu og framsetningu helstu staða, þannig að þeir geti með tímanum aukið sýnileika sinn og orðið framtíðarseglar Austurlands.
Staðirnir henta vel fyrir stafræna kynningu og samfélagsmiðla, sem styrkir stöðu Austurlands í samkeppni við aðra staði á Íslandi. Þessir fimm áfangastaðir bjóða upp á fjölbreyttar og ólíkar upplifanir. Slík breidd styrkir markmið um að dreifa gestum betur um svæðið, bæta upplifun og lengja dvöl.
Hér er að finna dramatískt fjallalandslag og einstaka jarðfræðimyndun í Stórurð, ríkulegt sjávarlíf, fuglavarp og fjölskylduvænt aðgengi í Hafnarhólma, eftirminnilegt strandsvæði og víðáttumikið útsýni í Lækjavík, tilkomumikla fossaröð í Klifbrekkufossum, auk áberandi lista og menningarupplifunar í Eggjunum í Gleðivík.
Þetta styrkir fjölbreytni áfangastaðarins og eykur aðdráttarafl hans fyrir breiðan hóp gesta. Staðirnir bjóða upp á menningu, dýra og náttúrulíf og göngu og útivistarleiðir af mismunandi lengd og erfiðleikastigi, sem auðveldar þróun afmarkaðra afurða, t.d. leiðsagnargöngur, fjölskylduvænar dagsferðir og lengri gönguleiðir fyrir vana ferðamenn.
*Viðbótarseglar eru til skoðunar á grundvelli greininga og verða þróaðir áfram í samráði við hagaðila.