Fara í efni

Aðgerðir

 

Að aðgerðunum koma m.a. Austurbrú, Íslandsstofa, Ferðamálastofa, sveitarfélög, samstarfsaðilar, SSA, Vegagerðin og einkaaðilar. Árlega er fundað með viðeigandi aðilum, forgangsraðað og hvernig vinna á að verkefnum úr áfangastaðaáætlun að ári hverju.

Auka sýnileika

Auka sýnileika vörumerkisins Austurland og veita greinagóðar og aðgengilegar upplýsingar um landshlutann sem áfangastað

Styrkja heildarímynd

Lögð er áhersla á að styrkja heildarímynd Austurlands og tryggja samræmda framsetningu í allri kynningu.

Markviss kynning á Austurlandi

Unnið er að markvissri kynningu á Austurlandi sem spennandi og fjölbreyttum áfangastað á net- og prentmiðlum. Þar undir falla blaðamannaferðir, skýr vef- og samfélagsmiðlastefna, reglulegar færslur og herferðir, ásamt stöðugri uppfærslu á vef Visit Austurland.

Efla samstarf

Efla samstarf við innlenda fjölmiðla til að auka umfjöllun og birtingu efnis um Austurland, náttúru, menningu og upplifanir svæðisins.

Tengslamyndun

Elft er til tengslamyndunar við mögulega kaupendur, ferðaskrifstofur og söluaðila með virkri þátttöku í ferðakaupstefnum og vinnustofum. Jafnframt er komið að skipulagningu FAM-ferða og almennra kynninga fyrir innlenda og erlenda aðila.

Styrkja samstarf

Styrkja samstarf við sveitarfélög á Austurlandi með sameiginlegum ferðavef undir merkjum Visit Austurland, þar sem lögð er áhersla á samræmda framsetningu og miðlun upplýsinga.

Uppfærslur á markaðs- og kynningarefni

Útgáfa og reglulegar uppfærslur á markaðs- og kynningarefni, svo sem Austurlandskorti, Destination Guide, sýningarefni og öðru efni sem styður við kynningu á áfangastaðnum

Viðhorf og upplifun ferðamanna

Fylgjast markvisst með viðhorfum og upplifun ferðamanna með greiningu á niðurstöðum ánægjukannana Ferðamálastofu, til að nýta innsýnina við áframhaldandi þróun og markaðssetningu.

Þróun heitisins East iceland

Skoða mögulega þróun í átt að aukinni notkun heitisins East Iceland í alþjóðlegri markaðssetningu, með Austurland sem stuðningsheiti, til að styrkja skýrleika og alþjóðlega ímynd áfangastaðarins.