Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Dymbilvika í safnahúsinu á Egilsstöðum

25.-27. mars
Bókasafn Héraðsbúa og Minjasafn Austurlands bjóða upp á skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna í dymbilvikunni (25.mars - 27. mars).
Á bókasafninu verður hægt að setjast niður og föndra í rólegheitum frá klukkan 13 til 17:30. Allt efni til föndurs á staðnum. Ath að yngri börn verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Á Minjasafninu er boðið upp á tvennskonar þrautir sem leysa þarf inn á sýningum safnsins. Opið frá 11-16. Frítt fyrir fullorðna í fylgd með börnum.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest

GPS punktar

N65° 15' 45.442" W14° 23' 47.051"