Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Um Austurland liggja hundruðir gönguleiða af fjölbreyttu tagi í einstakri náttúru. Undanfarin ár hefur Austurland haslað sér völl sem eitt vinsælasta göngusvæði landsins enda möguleikar til útvistar nánast óendanlegir og henta öllum getustigum. Hvort sem stefnt er upp í móti, gegnum urðir með grjóti eða á þægilega styttri göngu með mörgum nestispásum þá ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi á Austurlandi. 

Stórurð
Stórurð er ein mesta náttúruperla Íslands og nýtur vaxandi vinsælda hjá göngufólki sem leggur á sig drjúga göngu til að skoða Stórurð og upplifa hrikaleik Dyrfjalla í návígi. Stórurð er mynduð úr risavöxnum móbergs- og þursabergsbjörgum sem fallið hafa ofan á skálarjökul sem legið hefur við Dyrfjöll og má enn sjá leifar af honum undir hömrum fjallanna. Í urðinni er einstök náttúra; sléttir grasbalar, hrikalegir grjótruðningar, steinblokkir, sumar tugir metra á hæð, blágrænar tjarnir og sérstakur gróður. Saman mynda þessi náttúrufyrirbrigði ævintýralega veröld sem lætur engan ósnortinn. Fimm merktar gönguleiðir liggja að Stórurð. Sú mest gengna er frá Vatnsskarði en einnig liggur leið frá Héraði, úr Njarðvík og tvær frá Borgarfirði eystri. Ekki er ráðlegt að ganga í Stórurð án leiðsagnar staðkunnugra fyrr en orðið er snjólétt. Gera þarf ráð fyrir í það minnsta sex klukkustundum í ferðina.   Powered by Wikiloc
Fossahringurinn
Fossahringur er 8 kílómetra gönguhringur sem byrjar og endar í Laugarfelli, það tekur um 2 -3 klukkutíma að ganga þessa leið. Á gönguleiðinni má sjá 5 fossa og eitt gljúfur. Sumir þessara fossa eru meðal vatnsmestu fossa á Austurlandi og þekktastir þeirra eru Kirkjufoss og Faxi en þeir eru í Jökulsá í Fljótsdal sem rennur út í Lagarfljót.  Gangan er stikuð og nýtur sívaxandi vinsælda meðal göngufólks. Tilvalið er í lok göngu að baða sig í náttúrulaugunum í Laugarfelli. GPX skrá af leiðinni   Powered by Wikiloc
Bjólfur
Bjólfur – útsýnisparadís yfir Seyðisfjörð Bjólfur er 1.085 metra hátt, tignarlegt fjall sem gnæfir yfir Seyðisfjörð og býður upp á magnað útsýni. Gangan upp á toppinn er 5,8 km aðra leið og hefst við skíðaskálann í Stafdal. Leiðin liggur eftir gömlum fjallavegi sem upprunalega var lagður vegna ljósleiðaralagningar. Á leiðinni ferð þú yfir Stafdalsá, gengur fram hjá glæsilegum fossi og heldur svo áfram jafnt og þétt upp hrygginn. Á toppnum bíður steinvarða með gestabók, en ef þú heldur aðeins áfram niður fyrir hæsta punktinn opnast stórkostlegt útsýni beint yfir fjörðinn og bæinn fyrir neðan. Gangan er hæfilega krefjandi, með um 645 metra hækkun, og tekur að jafnaði 3–4 klukkustundir fram og til baka. Snjór getur haldist lengi í efri hlíðum fjallsins, svo best er að fara þessa göngu frá lok júní og fram á haust.  Wikiloc | Bjólfur Trail 
Víknaslóðir
Víknaslóðir er gönguleiðakerfi sem teygir sig yfir landssvæðið milli Borgarfjarðar eystri og Loðmundarfjarðar. Svæðið er eitt best skipulagða göngusvæði á Íslandi í dag, vel stikaðar og merktar leiðir. Ferðamálahópur Borgarfjarðar gefur í samvinnu við hagsmunaaðila á svæðinu út öflugt gönguleiðakort sem fæst hjá öllum ferðaþjónustuaðilum á Borgarfirði eystri, í Upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum og hjá Ferðafélagi Íslands í Mörkinni. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs rekur í samvinnu við Ferðamálahóp Borgarfjarðar þrjá vel búna gönguskála á Víknaslóðum, í Breiðuvík, Húsavík og í Loðmundarfirði. Ferðaþjónustuaðilar á Borgarfirði veita göngufólki fjölbreytta þjónustu, svo sem við ferðaskipulag, gistingu, leiðsögn, flutninga (trúss) og matsölu. Gönguleiðakerfið er fjölbreytt með styttri og lengri gönguleiðum svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.    
Stapavík við Héraðsflóa
Utan við bæinn Unaós, skammt frá ósum Selfljóts stendur Stapavík. Milli 1930 og 1945 var þar uppskipunarhöfn og er staðurinn nátengdur verslunarsögu Borgarfjarðar eystri og Héraðs. Víkin er þverhnípt og var varningur fluttur í land af skipum með handknúnu spili en leifar þess standa enn í víkinni til minningar um þennan tíma. Víkin sjálf er gríðarfalleg og útsýni til norðurs er stórfenglegt á góðum degi. Merkt gönguleið liggur frá Unaósi með fram Selfljóti þaðan sem Héraðssandar og Hellisheiði eystri blasa við. Gangan tekur um klukkustund hvora leið en frá Stapavík er einnig hægt að fylgja merktri leið um Gönguskarð niður í Njarðvík. Powered by Wikiloc
Steinboginn í Jafnadal
Í hlíðum Álftafells ofan við Jafnadal má finna einstakan steinboga sem gaman er að skoða. Boginn er afar heillegur, myndaður af náttúrunni sjálfri í gegnum aldirnar, og þykir með þeim glæsilegri á landinu. Þetta er sannkölluð falin perla fyrir náttúruunnendur og göngufólk. Gangan að boganum hefst í þorpinu Stöðvarfirði og liggur í gegnum Jafnadal, þar sem gróðursælt landslag og kyrrð setja svip sinn á upplifunina. Á leiðinni kemur þú að klettaþyrpingunni Einbúa sem er stórt og sérstætt bjargi sem rís tignarlega úr dalbotninum. Þaðan liggur stígurinn áfram með þægilegum halla upp hlíðar fjallsins að steinboganum sjálfum, með stórfenglegt útsýni yfir fjörðinn og nærliggjandi fjallgarða. Gangan hentar flestum og tekur um 2–3 klukkustundir fram og til baka. Best er að leggja leið sína að þessum stað frá síðla vors og fram á haust, þegar aðstæður eru góðar og stígurinn greiðfær. 
Vöðlavík gönguleiðir
Vöðlavík, sem stundum er kölluð Vaðlavík, er eyðivík sunnan Gerpis en þar voru áður nokkrir sveitabæir. Vegarslóði liggur til Vöðlavíkur, sem er einungis opinn á sumrin og er þá fær er fjórhjóladrifnum bílum.  Tvær stikaðar gönguleiðir liggja til Vöðlavíkur frá Eskifirði /Reyðarfirði, annars vegar yfir Karlsskálastað og hins vegar fyrir krossanes. Frá Vöðlavík liggur gönguleið yfir í Sandvík. Það er um fimm klukkustunda ganga um Gerpisskarð, sem fer hæst í um 700 m.y.s.  Úr víkinni og heiðinni, Vöðlavíkurheiði, eru tveir fjallstindar einna mest áberandi: Snæfugl og Hestshaus. Hörmuleg sjóslys hafa orðið við Vöðlavík á liðnum árum. Til dæmis strandaði skipið Bergvík SU í Vöðlavík í desember 1993. Mörgum er enn í minni að við tilraun til þess að ná skipinu á flot strandaði björgunarskipið Goðinn í víkinni þann 10. janúar 1994. Einn fórst við strandið en þyrlusveit Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli bjargaði öðrum skipverjum. Um þessa atburði er fjallað í heimildarmyndinni Háski í Vöðlvík.
Fuglabjarganes
Fuglabjarganes er hluti af strandlengju Vopnafjarðar, norðan megin í firðinum.  Fuglabjarganes er á Náttúruminjaskrá Íslands vegna fagurrar og fjölbreyttrar strandar og mikils fuglalífs. Gengið er í fjörunni niður á nesið þar sem taka við þverhnípt björg beint niður í sjó, klettadrangar sem gnæfa upp úr sjónum innan við nesið, gróðursæl víðátta og víðsýni yfir opið hafið. 
Þerribjörg
Nokkuð brött og erfið ganga. Ekið er upp á Hellisheiði, beygt til hægri (ef komið er að austan) og ekið eftir vegarslóða þar til komið er efst í Kattárdalsdrög. Vegarslóðinn liggur niður í Kattárdal. Þar er skilti þar sem bílum er lagt og gangan hefst. Stikað er frá skiltinu fram á brún ofan við Múlahöfnina. Þaðan (65°45.144-W14°21.964) liggur kindagata niður fyrir brúnina niður skriðuhrygg og niður í Múlahöfn. Höfnin er frábær náttúrusmíð gerð af meistarans höndum, umgirt bríkum og dröngum á tvo vegu. Múlahöfn var gerð löggilt verslunarhöfn 1890 en aðeins var skipað þar upp einu sinni þar sem erfitt var að koma vörum til byggða. Frá Múlahöfninni er síðan gengið meðfram sjónum í norður út á ytri tangann. Þar blasir við Þerribjarg og þar undir Langisandur. Hólkurinn með gestabók og stimpli er við stíginn niður á sandinn. Allir ættu að ganga sandinn undir Þerribjargi áður en haldið er til baka. Hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs. Powered by Wikiloc
Fólkvangur Neskaupstaðar
Sannkölluð útivistarparadís við bæjarvegginn. Fólkvangur Neskaupstaðar tekur við þar sem þéttbýlið endar á eystri mörkum Neskaupstaðar. Fáir þéttbýlisstaðir á Íslandi eiga sér jafn ákjósanlegt friðland við bæjarvegginn. Landslag er tignarlegt, útsýni fagurt, auðugt lífríki og fjölbreyttar jarðmyndanir. Svæðið er því kjörið til útivistar, náttúruskoðunar og náttúrufræðslu. Margar og skemmtilegar gönguleiðir eru í friðlandinu, s.s. Páskahellir og Urðum. Þar er einnig fræðslustígur með ábendingum um ýmis náttúrufyrirbæri. Fólkvangur Neskaupstaðar er sá fyrsti sem settur var á fót hér á landi. Vorið 1971 lagði náttúruverndarnefnd Neskaupstaðar fram tillögu um stofnun fólkvangs utan Stóralækjar. Tillagan var samþykkt af Náttúruverndarráði og ráðuneyti og tók friðlýsingin formlega gildi 29. nóvember 1972. Nánar um fólkvanginn á vef Náttúrustofu Austurlands.
Vestdalur
Gönguleiðir upp að Vestdalsvatni, að skúta Fjallkonunnar, inn Stafdal, upp á Bjólf, yfir í Loðmundarfjörð eða yfir á Hérað liggja um Vestdal. Sumar leiðanna eru stikaðar, aðrar eru merktar inn á kortið „Gönguleiðir á Víknaslóðum“ sem fæst í upplýsingamiðstöðvum. Vestdalur og Vestdalseyri eru á náttúruminjaskrá fyrir sérstæðan gróður og menningarminjar. Hluti leiðarinnar er gömul póst- og verslunarleið, ein sú fjölfarnasta á Austurlandi á árunum 1880-1910 og víða má sjá fallegar gamlar veghleðslur og vörður. Við Vestdalsvatn fundust fyrir tilviljun bein, nælur frá Víkingaöld og mikið perlusafn sumarið 2004. Við rannsókn kom í ljós að beinin og perlurnar tilheyrðu þrjátíu ára gamalli konu frá því um 940. Fundurinn telst vera með merkari fornleifafundum hérlendis.
Landsendi
Gengið frá skilti sem er við veg nr. 917 (áður en haldið er upp á Hellisheiði) við Biskupshól (N65°42.52-W14°24.41). Þaðan er svo gengið að Keri sem er forn verstöð og út á Landsendahorn. Þar er afar fallegt útsýni yfir Móvíkur, tvær víkur sem eru næst fyrir utan Landsenda og mynda stórar geilar inn í strandfjöllin. Ofan við þær eru um 2-300 m há björg og snarbrattar skriður, Móvíkurflug. Bergið í þeim er aðallega líparít sem skartar öllum regnbogans litum. Hólkur með gestabók og stimpli er á bakkanum fyrir ofan Ker. Hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs GPS : N65° 43.352-W14°23.300 Powered by Wikiloc
Fossastígur
Ánægjuleg og létt gönguleið frá hjarta Seyðisfjarðarkaupstaðar meðfram Fjarðará inn að Fjarðarselsvirkjun. Gönguleiðin liggur að hluta til um lítið skógræktarsvæði, neðan klettabeltis sunnan megin ár.Fjölskrúðugur gróður, lækir, fossar og fögur fjallasýn prýðir þessa notalegu gönguleið. Heimsókn í elstu starfandi riðstraumsvirkjun landsins,Fjarðarsel (1913), er góður endapunktur, en þá þarf að hafa samband við Upplýsingamiðstöðina í síma 472 1551 til þess að fá hana opnaða. Aðgangur er ókeypis. Berjaland er mikið inn við Fjarðarsel, þar má finna aðalbláber, bláber og krækiber seinnihluta ágúst, allt fram til frosta. Fossafúsum göngugörpum skal ráðlagt að halda áfram frá Fjarðarseli eftir stikuðu leiðinni sem liggur meðfram ánni að sunnanverðu .Leiðin liggur upp að svonefndum Neðri-staf; að minnisvarða um ferðafrumkvöðulinn Þorbjörn Arnoddson í um 300 m. hæð. Fögur fjallasýn, fossar, gróður og saga er skemmtileg blanda sem gerir þessa gönguferð ógleymanlega. 2,5 og 4 klst. / 2 - 6 km.Auðgengið frá júní fram til hausts. 
Bjargselsbotnar
Gengið er af stað frá skilti rétt við Hallormsstaðaskóla (gamla Hússtjórnarskólann). Leiðin er merkt með ljósgrænum stikum.Gengið er um framhlaupsurð, sem myndaðist fyrir um 10.000 árum og nefnist Hólar. Áfram er haldið upp í Bjargselsbotna, inn eftir og undir Bjarginu að Þverbjargi þar sem Illaskriða hefur fallið. Út og niður af Illuskriðu er gengið niður að Leirtjarnarhrygg. Bjargselsbotnar eru hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs. GPS : N65°05.465-W14°43.031 GPX skrá af gönguleiðinni Powered by Wikiloc 
Fardagafoss gönguleið
Fardagafoss fellur skammt frá Egilsstöðum, við rætur Fjarðarheiðar. Hann er efstur fossanna í Miðhúsaánni en hinir heita Gufufoss og Folaldafoss. Merkt gönguleið liggur að fossinum og er hún greiðfær fyrir utan seinasta spölinn sem er svolítið erfiður yfirferðar. Gengið er frá bílastæði við Áningatstein (við veg 93.) Á bak við fossinn er hellir en sagan segir að í honum hafi búið ferleg tröllskessa. Talið er að göngliggi í gegnum Fjarðarheiðina yfir í Gufufoss í Fjarðará í Seyðisfirði. Skessan undir Fardagafossi var fræg fyrir að eiga ketil fullan af gulli. Þegar skessan var orðin svo gömul að hún vissi dauða sinn nálægan þá renndi hún katlinum með gullinu niður í djúpan skessuketil sem er í miðjum Gufufossi, neðar í Miðhúsaánni. Sagt er að sjáist í handfangið á katlinum þegar lítið vatn er í ánni.  Powered by Wikiloc
Asknes gönguleið
Að Asknesi í Mjóafirði má sjá leifar af gamalli hvalstöð, sem reist var af Norðmönnum um aldamótin 1900. Var hún sú stærsta í heiminum á þeim tíma. Þegar umsvif stöðvarinnar voru í hámarki unnu þar um 200 manns en í dag búa aðeins um 40 manns í Mjóafirði öllum. Það liggur enginn vegur út á Asknes en þangað er skemmtilegt að ganga frá veginum innst í firðinum.
Eiríksstaðahneflar - gönguleið
Eiríksstaðahneflar eru tvö hliðstæð fjöll á Jökuldalsheiði, einnig þekkt sem Fremri-Hnefill (947 m) og Ytri-Hnefill (922 m). Skemmtileg gönguleið liggur á Hneflana. Þá er gengið frá skilti við Þverá sem er innan við Eiríksstaði á Jökuldal. Fyrst er haldið á Fremri-Hnefil og þaðan á Ytri-Hnefil og niður í Eiríksstaði. Fyrir þá sem vilja lengja gönguna svolítið er gaman að ganga að Hneflaseli, heiðarbýli sem fór í eyði árið 1875 og þaðan til baka á milli Hneflanna nður í Jökuldal. Leiðin er hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs. GPS : N65°08.617-W15°28.195  
Hólmatindur gönguleið
Hólmatindur, 985 metra hár, er stolt Eskfirðinga en glæsilegur tindurinn stendur austan megin í firðinum, gengt þorpinu. Krefjandi gönguleið liggur á fjallið en á toppnum geta göngugarpar kvittað í gestabók.  Hólmatindur er eitt af „Fjöllunum fimm í Fjarðabyggð “ en það er verkefni sem skólabörn fundu upp en Ferðafélag Fjarðamanna hrinti í framkvæmd.    Powered by Wikiloc
Álfkonusteinn gönguleið
Töluverðan spöl fyrir ofan bæinn Bustarfell í Vopnafirði stendur stór steinn sem kallast Álfkonusteinn. Tiltölulega létt er að ganga frá Bustarfelli að steininum en honum tengist skemmtileg þjóðsaga. Sagan segir að sýslumannsfrú á Bustarfelli hafi í draumi verið leidd inn í steininn. Þar kom hún til hjálpar álfkonu í barnsnauð, sem launaði fyrir sig með fallegum gullofnum vef eða klæði. Klæðið er haganlega gert, framandi og einsdæmi hér á landi, og er nú í eigu Þjóðminjasafns Íslands. 
Hafrahvammagljúfur
Hafrahvammagljúfur á Austurlandi er með stærstu og stórfenglegustu gljúfrum landsins. Þar sem gljúfrið er dýst eru um 200 metrar frá botni að brún og gljúfrið er um 8 kílómetrar að lengd. Merkt gönguleið er með fram gljúfrinu og niður að Magnahelli. Það þarf fjórhjóladrifsbíl til að keyra að upphafspunkti gönguleiðarinnar en hægt er að sjá hluta gljúfursins frá Kárahjúkum og þangað má komast á venjulegum fólksbíl.
Grænafell
Skjólsælt og vinalegt svæði undir kjarrivöxnum hlíðum Grænafells skammt vestan við þéttbýlið Reyðarfjörð. Auðfær, stikuð gönguleið liggur upp á fellið frá Fagradal. Á Grænafelli er lítið stöðuvatn. Síðan er unnt að fylgja stórfenglegri gönguleið meðfram undurfögru gili Geithúsaár. Stórir steinar í kjarrinu minna á álfaborgir en eru í raun framburður snjóflóða og skriða úr fjallinu.  Áratugum saman var hefð að unglingar gróðusettu hver sitt tré í Grænafellinu og eru stór grenitré dæmi um það. Í Grænafelli var löngum samkomustaður Reyðfirðinga og háðu þeir íþróttamót sín þar.  Nú er þetta vinsælasta göngusvæði þorpsbúa.
Sandfell
Sandfell (743 m) er fallegt líparítfjall sunnan Fáskrúðsfjarðar og er það dæmigerður bergeitil. Í suðurhlíðum fjallsins má sjá hvernig bergeitillinn hefur lyft upp basaltþekju. Bergeitillinn er talinn vera 600 m þykkur og eitt besta sýnishorn frá tertíertíma á norðurhveli jarðar. Mjög skemmtileg og falleg gönguleið er upp á Sandfellið. Powered by Wikiloc
Urðarhólar
Í Afrétt, innst í Borgarfirði Eystri, er fallegt framhlaup. Þangað liggur stikuð, um 3 km. létt gönguleið. Gengið er framhjá fallegu vatni, Urðarhólavatni. Ánægjulegt er að ganga um framhlaupið, þar sem skiptast á hólar og tjarnir, og lengja þannig gönguna að vild.
Brúnavík
Brúnavík er næsta vík sunnan Borgarfjarðar eystri og er hluti gönguleiðakerfisins um Víknaslóðir. Gönguleiðin er alls um 12 km, þægileg og fögur dagleið. Gengið er frá bílastæði við Hafnarhólma og um Brúnavíkurskarð (360 m) austan Geitfells. Nokkuð bratt er niður að bæjarstæðinu og þarf að vaða eða stikla Víkurána ef farið er út á sandinn. Áin er oftast greiðfær niðri við sjó og vel þess virði að ganga niður í fjöru því hún er einstaklega litfögur. Til baka er gengið inn víkina, hvoru megin ár sem óskað er, inn að Brotagili en þar skammt frá er göngubrú yfir ána. Frá Brotagili er genginn vegslóði yfir Hofstrandarskarð (320 m). Gangan tekur um 5-6 klst. eftir vörðuðum leiðum og vegslóða.