Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Friðrik Ómar og Jógvan: Sveitalíf 2

29. júní

Friðrik Ómar og Jógvan: Sveitalíf 2
29. júní kl. 21:00-23:00 í Miklagarði
Miðasala á tix.is og við inngang

Þeir eru heimsfrægir á landsbyggðinni og eiga met í að vera í öðru sæti í öllum keppnum sem þeir taka þátt í. Saman eru þeir hinsvegar á toppnum og hafa aldrei verið betri. Vinirnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen tilheyra ýmsum minnihlutahópum en þegar kemur að því að skemmta fólki þá kunna þeir sitt fag. Eftir afar vel heppnaða tónleikaferð um landið sumarið 2020 eru þeir mættir aftur á húsbílnum og þeysast um landið með hljóðfærin og góða skapið í farteskinu. Hér er á ferðinni skemmtun sem enginn má láta framhjá sér fara á ferð um landið í sumar.
Það verður dansað, sungið og hlegið. Svo einfalt er það.

GPS punktar

N65° 45' 13.247" W14° 49' 46.602"

Staðsetning

Mikligarður

Fleiri viðburðir