Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Draugahundur í gamla barnaskólanum á Eskifirði

17. júní kl. 13:00-17:00

Bjargey Ólafsdóttir: Draugahundur í gamla barnaskólanum á Eskifirði
17. Júní kl. 13:00-17:00 í gamla barnaskólanum, Eskifirði
Aðgangur ókeypis

„Hundar tala, en aðeins til þeirra sem kunna að hlusta.” – Orhan Pamuk.

Sýningin Draugahundur samanstendur af 12 ljósmyndum af Samoyed voffum. Samoyed hundurinn sem líkist draug var upphaflega ræktaður til að veiða, draga sleða, og smala hreindýrum.

Hver er þessi hundur? Hundurinn í okkur? Hvíti draugahundurinn er mættur til Eskifjarðar.

Bjargey Ólafsdóttir lærði ljósmyndun, málaralist og blandaða tækni í Myndlista og handíðaskóla Íslands og Listaakademíunni í Helsinki, og handritsgerð og leikstjórn í Binger Filmlab í Amsterdam. Hún vinnur í fjölbreyttum miðlum, og verður útkoman oft í formi íronískra verka, stundum ofbeldisfullra eða óhugnanlegra, og sækir hún innblástur í þráhyggjur og fantasíur nútímalífs. Persónurnar í verkum hennar eru gjarnan einstaklingar sem týnast í kunnuglegum en þó framandi aðstæðum. Hún hefur gert nokkrar kvikmyndir sem hlotið hafa lof gagnrýnenda, og hefur sýnt verk sín víða um lönd, t.d. í Listasafni Reykjavíkur, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu í Reykjavík, Kunstverein í München, KunstWerke í Berlín, Galaria Traschi í Santiago, Chile og Färgfabriken Norr í Östersund, Svíþjóð.

Sýningin Draugahundur í Gamla Barnaskólanum á Eskifirði er á vegum Menningarstofu Fjarðabyggða.

Bókin Rófurass sem tengist Draugahundinum er fáanleg á vefsíðu VOID: https://void.photo/rofurass

GPS punktar

N65° 3' 57.152" W14° 0' 3.145"

Staðsetning

Gamli barnaskólinn

Fleiri viðburðir