Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ganga á Fáskrúðsfirði

7. mars kl. 17:00
Í tilefni af mottumars ætlar Göngufélag Suðurfjarða að bjóða upp á göngu og leiðsögn um æfingar. Gengið verður eftir göngustíg ofan við bæinn þar sem áð verður við æfingaskilti og gerðar léttar æfingar. Mæting við Skólamiðstöðina á Fáskrúðsfirði. Gangan er um 3 km löng. Gott að hafa í huga að vera á broddum ef göngufærið kallar eftir því og þeim sem finnst gott að ganga með stafi að muna eftir þeim. Klæðum okkur eftir veðri og kippum góða skapinu með.
Hlökkum til að sjá ykkur

GPS punktar

N64° 55' 47.889" W14° 0' 30.403"

Fleiri viðburðir