Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Guðrún Árný - Nostalgía í Egilsbúð

29. mars kl. 20:30

Upplýsingar um verð

4900
Föstudaginn langa mætir Guðrún Árný í Neskaupstað með sannkallaða Nostalgíu, stóru lögin sem stóðu upp úr 80´s 90´s og 00´ - Lög sem allir þekkja. Lög sem allir elska. Kröftug tónlist og létt andrúmsloft hefur einkennt þessa tónleika því Guðrún Árný gefur stærstu söngkonum heims ekkert eftir og inn á milli slær hún á létta strengi og spjallar við áhorfendur.
Guðrún Árný ásamt frábærri hljómsveit sinni mun taka vel á móti ykkur. Þetta verður heilmikil tónlistarveisla sem enginn má missa af.
Tónlistarstjóri : Vignir Þór Stefánsson - píanó Hálfdán Árnason á bassa. Gunnar Leo Pálsson á trommur. Pétur Valgarð á gítar. Íris Lind Verudóttir – raddir
Ekki missa af þessum frábæra viðburði - Þetta verður stuð!
Húsið opnar: 20:30
Miðaverð 4900kr í forsölu á Tix en 6000 kr. við innganginn

GPS punktar

N65° 8' 51.427" W13° 41' 19.945"

Fleiri viðburðir