Bókasafn Djúpavogs stendur fyrir kvöldlestri fyrir börn í sundlöginni á Djúpavogi. Lesari er Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings.
Gert er ráð fyrir að lesturinn hefjist kl. 19:00 og verði lokið fyrir 19:30 og því er tilvalið að koma í sund, hlusta á lestur og fara svo heim á náttfötunum.
Lesturinn er samstarfsverkefni Bókasafns Djúpavogs og Íþróttamiðstöðvar Djúpavogs og er hluti af Bras - menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi.
Áður hafa sambærilegir viðburðir farið fram í sundlauginni á Egilsstöðum og Sundhöll Seyðisfjarðar.