Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Dagar Myrkurs 2026

26. október - 1. nóvember

Dagar myrkurs er sameiginleg byggðahátíð Austurlands sem haldin er ár hvert síðustu vikuna í október. Þar fögnum við skammdeginu, samverunni og öllu því sem lýsir upp myrkrið.

Markmið hátíðarinnar er að draga fram tækifærin sem felast í myrkrinu og skapa vettvang fyrir ímyndunarafl, samveru og fjölbreyttar upplifanir. Með Dögum myrkurs skapast tækifæri til að lyfta Austurlandi upp, virkja sköpunarkraftinn og hvetja íbúa og gesti til að taka þátt, upplifa og njóta saman.

Fyrirtæki, íbúar og aðrir þátttakendur eru hvattir til að vera með og finna sínar eigin leiðir til að fagna myrkrinu og sjá tækifærin sem í því felast.

Búðu til viðburði, hvettu aðra til þátttöku og taktu þátt í viðburðum sem haldnir eru víðsvegar um Austurland.

Hægt er að fylgjast með viðburðum og finna allar helstu upplýsingar á dagarmyrkurs.is.

Fögnum mykrinu saman!