Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hátíðardagskrá 17. júní í Fjarðabyggð

17. júní kl. 12:20

Fjarðabyggð heldur 17. júní hátíðlegan í samstarfi við íþróttahreyfinguna í Fjarðabyggð og fer hátíðardagskrá sveitarfélagsins fram til skiptis í hverjum bæjarkjarna. Hátíðardagskráin í ár fer fram við Salthúsmarkaðinn á Stöðvarfirði.

Dagskrá 17. júní

12:20 - 12:45 Afhjúpun og vígsla á upplýsingaskiltum við Stöðvarkirkjugarð og um fornleifauppgröftinn við Stöð

13:00 – 13:15 Ávarp forseta bæjarstjórnar

13:15 – 13:30 Ávarp Fjallkonunnar - Margarette Sveinbjörnsdóttir

13:30 – 13:50 Tónlistaratriði með börnum úr tónlistarskólum Fjarðabyggðar

13:30 – 16:00 Hoppukastalar fyrir börnin

13.30 – 16:00 Andlitsmálning og götulist með Skapandi sumarstörfum

13:30 - 14:00 Kaka í tilefni af 80 ára lýðveldisafmæli Íslands Lýðveldiskaka borin fram í boði forsætisráðuneytisins.

13:45 – 14:30 Grillaðar pylsur

13:30 – 15:00 Slökkvilið Fjarðabyggðar býður gestum að skoða nýjan slökkvibíl

14:00 – 15:00 Sápukúlufjör

17. júní kaffi á vegum félags eldri borgara verður í Balaborg frá klukkan 14:00 – 16:00

Fleira skemmtilegt á Stöðvarfirði

Ýmislegt áhugavert og skemmtilegt er að sjá og skoða á Stöðvarfirði og tilvalið að nýta ferðina.

Steinasafn Petru 9-17

Salthúsmarkaðurinn 10 -17

Gallerí Snærós 11:00 – 17:00

GPS punktar

N64° 50' 3.549" W13° 52' 20.625"

Fleiri viðburðir