Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Haustfundur Ferðaþjónustunnar á Austurlandi

22. október kl. 10:00

Haustfundur ferðaþjónustunnar er árlegur vettvangur þar sem ferðaþjónustuaðilar á Austurlandi hittast, fræðast, deila reynslu og eiga góða stund saman. Í ár hittumst við á Seyðisfirði þar sem dagskráin verður fjölbreytt og farið verður um víðan völl.

Við lítum yfir árið sem er að líða, skoðum áherslur í markaðssetningu, nýjar leiðir til að ná til ferðamanna og hvernig við getum haldið áfram að styrkja ferðaþjónustu á Austurlandi – allt árið um kring.

Á dagskrá eru:

Visit Austurland
Árið í fyrra, ferðaleiðir sem markaðstól, herferðir ársins og árangur.

Daði Guðjónsson og Hrafnhildur Þórisdóttir – Íslandsstofa
Ekki vera leiðinleg - ný herferð fyrir Ísland, hlutverk Austurlands og áhættan við að vera fyrirsjáanleg

Jóhannes Þór Skúlason – Samtök ferðaþjónustunnar
Jákvæð ímynd ferðaþjónustunnar, samvinna að árangri.

Ásta Kristín – Íslenski Ferðaklasinn
Hver segir þína sögu? Mælir gervigreindin með Austurlandi?

Catherine Frederiksen – Digido
Social Media Best Practices for Busy Small Businesses.

Ingvi Örn Þorsteinsson og Björt Sigfinnsdóttir 
Seyðisfjörður allt árið


Þegar formlegri dagskrá lýkur kl. 16.00 tekur við smá ferðalag um Seyðisfjörð, áður en við ljúkum deginum með kvöldverði, skemmtun og samveru frameftir kvöldi.

Við hvetjum ferðaþjónustuaðila á Austurlandi til að taka daginn frá, mæta á Haustfundinn og nýta tækifærið til að hitta samstarfsfólkið, fá nýjar hugmyndir, deila reynslu og njóta góðs félagsskapar.

Skráning fer fram hér - https://forms.gle/GrpxHx45Qb66DdcV7

Við hlökkum til að sjá ykkur á Seyðisfirði 22. október!

GPS punktar

N65° 15' 35.451" W14° 0' 17.643"

Sími