Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Tónleikaröð Bláu Kirkjunnar- Invisible strings

29. júlí kl. 20:00-22:30

Þeramín er eitt mest heillandi hljóðfæri sem fundið hefur verið upp og það eina sem leikið er á án snertingar. Rafsegulbylgjur mynda hljóðið þegar sá sem á það leikur hreyfir hendurnar í kringum tvö loftnet. Það var fundið upp árið 1920 og er ratar sjaldan á tónleikasvið, þannig eru hverjir tónleikar með því einstakt tækifæri.

„Invisible Strings“ er samvinnuverkefni tveggja alþjóðlegra viðurkenndra tónlistarmanna, þeramínleikarans Thorwald Jørgensen og gítarleikarans Josip Dragnić. Dúettinn hefur heillað áheyrendur víða í Evrópu og komið fram í Þýskalandi, Lúxemborg, Spáni, Króatíu, Ítalíu, Svartfjallalandi og Portúgal.

Efnisskráin einkennist af útsetningum á verkum frægra tónskálda, s.s. Manuel de Falla, Heitor Villa-Lobos og Astor Piazzolla, auk tónlistar sem skrifuð er sérstaklega fyrir þessa sérstæðu hljóðfærablöndu.

Í sumum verkanna líkir þeramínið eftir mannsröddinni, í öðrum má heyra bergmál af hljómi sellós eða fiðlu. Þegar gítarinn bætist við skapa þessi tvö hljóðfæri heillandi samspil þar sem hljómheimur sex strengja gítarsins blandast við laglínurnar sem leiknar eru á hinu „ósýnilegu strengi“ þeramínsins.

 

Húsið opnar kl. 20:00.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30.

GPS punktar

N65° 15' 35.451" W14° 0' 17.643"

Fleiri viðburðir