MAAR er samvinnuverkefni Aspar Eldjárn, Helgu Ragnarsdóttir og Valeriu Pozzo, þriggja vinkvenna sem allar starfa í tónlist en eru nú í fyrsta skipti að semja saman. Vinkonurnar kynntust fyrir rúmum áratug í London þar sem þær bjuggu, og hafa allar starfað við tónlist og aðra listsköpun síðan þá. Þær hafa unnið saman um langt skeið, þar sem þær hafa stutt við og leikið tónlist hver annarar en leiða nú í fyrsta sinn hesta sína saman í sameiginlegri tónsköpun.
Kveikjan að þessu samstarfsverkefni varð til í samtali þeirra á milli þar sem þær ræddu mikilvægi þess að búa til umhverfi sem hlúir að, styður við og hvetur til sköpunar og vildu þær búa til slíkan griðarstað í hver annarri. Þær héldu því í sumarbústað á suðurlandi sumarið 2024, þar sem á einni viku urðu til fjögur lög og textar sem munu prýða fyrstu stuttskífu sveitarinnar. Er stuttskífan einungis upphafið af tónsköpuninni, en hugsunin er að fylgja henni eftir með áframhaldandi tónsmíðum, breiðskífu og tónleikahaldi um ókomin ár.
Tónlistin sjálf einkennist af röddunum, djúpstæðum en óræðum textum og órafmögnuðum hljóðfærum.
Húsið opnar kl. 20:00.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30.