Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

PREFAB / FORSMÍÐ Einingahús og listræn tjáning frá einum aldamótum til annarra

Það gleður okkur að kynna opnun haustsýningar í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austurlandi: PREFAB / FORSMÍÐ Einingahús og listræn tjáning frá einum aldamótum til annarra Sýningarsalur Skaftfells, miðstöð myndlistar, Austurvegi 42, Seyðisfirði. Sýningarstjóri: Guja Dögg Hauksdóttir Opnun: 26. september 2020, kl. 14:00 - 18:00. Léttar veitingar og stuttar leiðsagnir verða í boði yfir daginn. Við minnum sýningargesti á eins metra regluna og að spritta hendur við inngang. Vegna takmarkana geta aðeins um 25 gestir verið inni í salnum í einu og þess vegna er opnunartíminn lengri yfir daginn. Sýningin stendur frá 26. september til 20. desember 2020. Opnunartími: Mið - lau kl. 12:00 - 16:00. Lokað sun - þri.

Það gleður okkur að kynna opnun haustsýningar í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austurlandi: 

PREFAB / FORSMÍÐ

Einingahús og listræn tjáning frá einum aldamótum til annarra

Sýningarsalur Skaftfells, miðstöð myndlistar, Austurvegi 42, Seyðisfirði.

Sýningarstjóri: Guja Dögg Hauksdóttir

Opnun: 26. september 2020, kl. 14:00 - 18:00.            Léttar veitingar og stuttar leiðsagnir verða í boði yfir daginn.

Við minnum sýningargesti á eins metra regluna og að spritta hendur við inngang. Vegna takmarkana geta aðeins um 25 gestir verið inni í salnum í einu og þess vegna er opnunartíminn lengri yfir daginn.

Sýningin stendur frá 26. september til 20. desember 2020.

Opnunartími: Mið - lau kl. 12:00 - 16:00. Lokað sun - þri.  

Einingahús, þ.e. byggingar úr einingum sem eru forsmíðaðar í verksmiðju og svo fluttar og settar saman á endanlegum stað eru grundvallandi fyrir þróun byggðar í Seyðisfjarðarkaupstað.

Á sýningunni PREFAB / FORSMÍÐ verða tekin fyrir þrjú dæmi um forsmíðuð einingahús með það að markmiði að vekja athygli á áhrif byggingarlistar á líf okkar, og þá sérstaklega hvaða hlut einingahús geta átt í framtíð manngerðs umhverfis.

Einingahúsin sem fjallað er um á sýningunni eru frá seinni hluta 19. aldar til okkar daga. Hvert verk er einkennandi fyrir fagurfræðilega nálgun hvers tíma. Elsta verkið er Stefánshús, svokallað katalóghús í sveitserstíl, íbúðarhús sem hannað var og smíðað í verksmiðju í Noregi, tekið niður og sett upp aftur á Seyðisfirði 1899. Annað verkið er Le Cabanon, sumarbústaður frá árinu 1951 sem módernista arkitektinn Le Corbusier (1887-1965) hannaði fyrir sjálfan sig. Bústaðurinn var byggður á smíðaverkstæði á Korsíku og var fluttur þaðan í einingum sem settar voru upp á lóðinni að Roquebrune-Cap-Martin á Cote-d'Azure í Frakklandi. Þriðja verkið er Nest (Hreiður) eftir Rintala Eggertsson arkitekta, sem er stofnsett í Osló af þeim Sami Rintala frá Finnlandi og Degi Eggertssyni frá Íslandi. Hreiður er eins konar kerfi húshluta af forsmíðuðum einingum sem þróað var árið 2016 til að koma til móts við vaxandi straum flóttamanna með neyðarbústöðum af almennilegum gæðum fyrir fjölskyldur í hörmulegum aðstæðum.

Áherslan á fagurfræðilegan þátt viðfangsefnisins er undirstrikuð með samspili þrívíðu innsetninganna við nýja myndlist eftir þrjá samtíma listamenn. Það eru María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir með Vatnaverk (2020), Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir með My hand, your hand (2019), og Arnór Kári Egilsson með Glit (2020).  

Með sýningunni hefur verið þróað listfræðsluverkefni fyrir grunnskólanemendur á miðstigi og nemendur á listnámsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum. Verkefnið er í boði BRAS, menningarhátið barna og ungmenna á Austurlandi, og List fyrir alla.

Nánari upplýsingar:

skaftfell@skaftfell.is (Hanna Christel), guja.dogg@gmail.com (Guja Dögg)                       

https://skaftfell.is/prefab-forsmid/