Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sólbrekka Mjóafirði

- Gistiheimili

Ferðaþjónustan Sólbrekku er 42 km frá Egilsstöðum, ekið um veg nr. 953. Í Sólbrekku gistiheimili eru 5 herbergi með samtals 18 rúmstæðum, uppbúið rúm eða svefnpokapláss, sameiginlegt eldhús og setustofa, þrjár snyrtingar m/ sturtum. Frí nettenging er fyrir næturgesti og afnot af þvottavél og þurrkara.

Fyrir framan gistiheimilið eru útibekkir, borð og stólar og leikvöllur er skammt undan. Tjaldsvæðið er á grasfleti fyrir framan og til hliðar við gistiheimilið og möguleiki á rafmagni f/ húsbíla. Einnig er reiðhjólaleiga í Sólbrekku og hægt að leigja reiðhjól heilan dag eða hluta úr degi.

Tvö sumarhús standa á Brekkubrún, neðan við bæinn Brekku. Í hvoru húsi er svefnpláss fyrir 4-5, svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi á neðri hæð auk svefnlofts með rými fyrir 2. Á neðri hæð er fullbúinn eldhúskrókur, eldhúsborð, svefnsófi og sófaborð. Húsin leigjast með uppbúnum rúmum og handklæðum. Frí nettenging.

Kaffi og léttar veitingar eru seldar í Sólbrekku frá 15. júní - 10. ágúst.

Merktar gönguleiðir eru í nágrenninu, fallegir fossar og mikil náttúrufegurð.

Hægt að kaupa göngukort.

Opnunartími:
Gisting er opin 06/06 - 31/08
Kaffi og veitingasala er opin 15/06 - 10/08

Til að sjá 360° mynd af Sólbrekku, smellið hér.

 

Sólbrekka Mjóafirði

Sólbrekka Mjóafirði

Ferðaþjónustan Sólbrekku er 42 km frá Egilsstöðum, ekið um veg nr. 953. Í Sólbrekku gistiheimili eru 5 herbergi með samtals 18 rúmstæðum, uppbúið rúm
Mjóifjörður

Mjóifjörður

Í landi sem er þekkt fyrir ósnortna staði sem eru úr alfaraleið, má samt færa rök fyrir því að Mjóifjörður sé sá afskekktasti. Mjóifjörður er 18 kílóm

Aðrir (2)

Margrét Sigfúsdóttir Sólbrekka 715 Mjóifjörður 8997109
Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn Mjóafirði - (Svæðismiðstöð) Sólbrekka 715 Mjóifjörður 470-9000