Baugur Bjólfs
Hátt yfir Seyðisfirði, þar sem sagan segir að landnámsmaðurinn Bjólfi hvíli, liggur Baugur Bjólfs. Hringlaga útsýnispallur sem sækir innblástur í sögu, náttúru og landslag staðarins. Baugurinn vísar til silfurhrings Bjólfs og tengir þannig fortíðina við nútímalega og látlausa hönnun.
Frá pallinum opnast 360° útsýni yfir Seyðisfjörð, bæinn, fjöllin og dalina. Hluti baugsins teygir sig út yfir fjallshlíðina og skapar tilfinningu fyrir því að svífa yfir landslaginu. Hér fær náttúran að njóta sín, staður til að ganga hringinn, setjast niður, staldra við og horfa langt út fjörðinn.
Malarvegur liggur að bílastæðinu og mælt er með fjórhjóladrifnum bílum. Frá bílastæðinu er um 15 mínútna ganga að útsýnispallinum.