Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Einangrun

11. júní

EINANGRUN eftir leikhópinn Lakehouse
11. júní kl. 15:15 og 18:45 á Egilsstðaflugvelli
Aðgangur ókeipis

Við lifum á öld samskipta á stafrænum vettvangi en á sama tíma einkenna einmanaleiki og depurð líf alltof margra. Deilum við raunverulega gleði og sorg með hvert öðru?
Leikhúsið er listform sameiningar og hér er hinn kynngimagnaði kraftur sviðslistanna nýttur til hugrenninga um einangrun í öllum sínum myndum. Hvað er það sem einangrar okkur, frá hverju og hvers vegna?
Einangrun er samskotsverk úr smiðju Leikhópsins Lakehouse þar sem raðað er saman ljóðum, örsögum og stuttum leikþáttum. Ellefu höfundar hvaðanæva af landinu lögðu til efnivið og úr varð 30 mínútna verk er birtist okkur í óvenjulegu umhverfi – á flugvöllum í fjórum landshlutum - í flutningi Guðmundar Inga Þorvaldssonar leikara og tónlistarmanns.
Leikhópurinn Lakehouse hefur á undanförnum árum vakið verðskuldaða athygli fyrir sýningar sínar Rejúníon og Í samhengi við stjörnurnar. Hópurinn sækist eftir því að veita fjölbreyttum röddum hljómgrunn og kallaði eftir efni frá skáldum í öllum landshlutum við undirbúning sýningarinnar. Lakehouse vill með þessu verki heiðra íslenska trúbadorinn, sögumanninn eða shamaninn sem glæðir samverustundir þorpsbúanna lífi með tilfinningaþrungnum frásögnum sínum, ádeilu, háði og kímni.
Sameinumst í einangruninni.

Sýningar eru í samstarfi við ISAVIA  og fara fram á eftirfarandi dögum og stöðum:

10. júní: Reykjavíkurflugvöllur kl. 17:00
11. júní: Egilsstaðaflugvöllur kl. 15:15 og kl. 18:45
12. júní: Akureyrarflugvöllur kl. 13:00 og kl. 17:00
13. júní: Ísafjarðarflugvöllur kl. 10:20 og kl. 18:00

Ekki er nauðsynlegt að taka frá miða. Vertu hjartanlega velkomin/n á sýningu að eigin vali!

Leikari: Guðmundur Ingi Þorvaldsson
Leikstjóri: Árni Kristjánsson
Ritstjóri leikhandrits: Sigríður Lára Sigurjónsdóttir
Framleiðandi: Harpa Fönn Sigurjónsdóttir

Einangrun er samskotsverk eftirtaldra höfunda:

Anna Sigríður Ólafsdóttir, Ísafjörður
Ásgeir Hvítaskáld, Egilsstaðir
Ásta Hafberg, Hörgársveit
Bára Örk Melsted, Hólmavík
Halla Mía Ólafsdóttir, Ísafjörður
Hallgrímur Hróðmarsson, Hveragerði
Harpa Rún Kristjánsdóttir, Hólar
Kristín Rut Kristjánsdóttir, Landsveit
Stefanía Hallbjörnsdóttir, Akureyri
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, Húsavík
Vala Hauksdóttir, Eyjafjöll

GPS punktar

N65° 16' 28.657" W14° 24' 23.434"

Staðsetning

Egilsstaðaflugvöllur

Fleiri viðburðir