Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Klifurfestival á Seyðisfirði

9.-12. júlí

Eftir einstaklega vel heppnaða hátíð árið 2024, þar sem um 120 klifrarar víðs vegar af landinu nutu veðurblíðunnar á næststærsta sportklifursvæði landsins á Seyðisfirði, er komið að því að endurtaka leikinn.

Í ár verður hátíðin með svipuðu sniði. Við gerum ráð fyrir mikilli veðursæld, en höfum þó tekið frá tvær helgar til öryggis. Stefnt er að því að halda aftur klifurkeppni með veglegum vinningum, þó með öðru ívafi en síðast. Sauna og varðeldur verða að sjálfsögðu á sínum stað, ásamt danspartíi, einhvers konar kruðerí- og slacklinegleði einn morguninn, yoga-upphitun, óvæntum viðburðum og jafnvel hlaupahópi fyrir fótfima klifrara.

Seyðisfjörður er sannkölluð útivistarparadís og ættu allir að finna klifur og aðra afþreyingu við sitt hæfi. Hugmyndin er að bæta við viðbótardegi þar sem boðið verður upp á fjallgöngu á einn af hinum fjölmörgu fjallatoppum sem umlykja fjörðinn, ef áhugi er fyrir hendi.

Nánari upplýsingar um það koma síðar. Rétt eins og fyrir hátíðina síðast hvetjum við klifrara með reynslu af boltun klifurleiða til að koma og bæta við perlum í ört stækkandi leiðasafn svæðanna í firðinum vikuna fyrir hátíðina.

Möguleikarnir á nýjum leiðum eru nánast endalausir. Boltar, akkeri og augu eru á staðnum, ásamt nauðsynlegum verkfærum ef þörf krefur. Inniklifuraðstaðan á Seyðisfirði hefur þar að auki tekið stakkaskiptum. Þar er nú Moon-veggur og bráðlega rís þar líka Kilter-veggur í fullri stærð sem allir verða að prófa!

Hægt er að fylgjast með okkur á Facebook

Við hlökkum til að sjá ykkur!

GPS punktar

N66° 0' 28.112" W22° 54' 28.869"