Í ágúst og september ætlar Moses Hightower að vera víða við fimmta mann og spila sig í fyrsta sinn hringinn í kringum landið í einni rispu. Það verður allt að frétta; glóðvolg nýútkomin plata í farteskinu og ennþá nýrri lög af annarri í smíðum á prógramminu. Stökkvið á Moses-lestina!
Hljómsveitin kemur við í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og heldur þar tónleika laugardaginn 12. september klukkan 20:00.
Tónleikarnir eru partur af tónleikaröð Sláturhússins Lang út / Far out
Miðaverð er 3.000 kr.
Nánar hér: https://www.facebook.com/events/1049732260852719