Upplýsingar um verð
55.000
Staðsetning: Hallormsstaðaskóli
Dagsetning: 6.-10. febrúar 2023
Tímasetning: mán - fim 09:00 - 16:00 / fös 09:00 - 12:00
Námskeiðsgjald: 55.000kr
Sérfræðingur: Ragnheiður Björk Þórsdóttur (Ragga) textíllistamaður og vefnaðarsérfræðingur
Innifalið
Kennsla og fræðsluefni frá Ragnheiði Björk, afnot af vefstól og aðgangur að Baðstofu, vefjarefni innifalið í prufustykki samkvæmt verkefnum vinnustofunnar. Hádegisverður alla dagana ásamt kaffi og te.

Opin vinnustofa með Ragnheiði Björk vefnaðarsérfræðingi á Baðstofu skólans. Ragnheiður Björk mun kenna grundvallaratriði í bindifræði, uppsetningu á vef í vefstól og hvernig lesið er úr vefnaðar uppskriftum. Þátttakendur fá að taka þátt í öllu ferlinu við uppsetningu á vef í vefstól; að rekja slöngu, rifja í vefstól, þræða í haföld og skeið og binda upp í vefstól auk þess að vefa mismunandi verkefni m.a. gólfmottu, töskuvefnað, borðdregil og fleira eftir því sem tíminn leyfir. Farið verður yfir helstu vefnaðaraðferðir; einskeftu, vaðmál, ormeldúk og samsettar bindinga. Einnig verður farið í útreikninga fyrir vefnað og mismunandi grófleika á garni sem notað er í uppistöðu og ívaf.
Dvöl í Hallormsstaðaskóla
Njóttu þess að dvelja í Hallormsstaðaskóla á vinnustofunni með skóginn umvafinn í kringum þig. Gisting getur verið styrkhæf - allar upplýsingar um kostnað er að finna í gjaldskrá skólans undir heimavist.
Kannaðu þinn rétt á ferða-, námskeiðs- og tómstundastyrk verkalýðsfélaga og fyrirtækja. Stéttarfélög geta beðið skólann um staðfestingu á þátttöku. Með því að gefa upp stéttarfélagið þitt hér að neðan veitir þú skólanum leyfi til að senda staðfestingu um þátttöku til félagsins.