Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Páskaævintýri undir Dyrfjöllum

14.-18. apríl

Upplýsingar um verð

https://ferdir.fjallakofinn.is/is/product/paskaaevintyri-undir-dyrfjollum

DYRFJÖLLIN FRÁ ÖLLUM HLIÐUM OG MEIRA TIL!

Fáir staðir á Íslandi eru þekktari fyrir mikla sumarfegurð en Borgarfjörður eystra, með allar sínar náttúruperlur nær og fjær eins og glitrandi festi sem laðar til sín ferðalanga alls staðar að úr heiminum! En fegurðin er að sjálfsögðu ekki eingöngu bundin við sumarið því vetrarfegurðin er ekki síðri. Og um það snýst þessi ferð, að upplifa Dyrfjöllin, Stórurðina, Víknaheiðina og Borgarfjörð eystra í vetrarbúningi, en njóta líka rómaðrar gestrisni heimamanna í góðri aðstöðu á gistihúsinu Blábjörgum.

Páskaferðin með 3 skíðagöngudögum leyfir þátttakendum að velja sitt eigið ævintýri eftir dagsformi, þar sem á tveimur af þremur dögunum verður hægt að velja auðveldari/styttri og erfiðari/lengri leið, með einum sameiginlegum degi þar sem allur hópurinn fer í sama ævintýrið. Þátttakendur þurfa að vera í ágætu almennu útivistar- og skíðagönguformi. Þarna verður farið um á ferðaskíðum (stálkanta utanbrautar-gönguskíðum). – Ein með öllu, MJÖG MIKIÐ innifalið! Þessi ferð er unnin í nánu samstarfi við heimamenn á Borgarfirði eystra.
Athugið að þarna verða ekki troðnar brautir og miðað við að þátttakendur séu á stálkanta utanbrautargönguskíðum – en þetta er ekki fjallaskíðaferð!

 

 

 

 

 

Fleiri viðburðir