Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sápugerð með Else

17.-18. febrúar

Upplýsingar um verð

34.000 kr
Staðsetning: Hallormsstaðaskóli
Dagsetning: 17.-18. febrúar 2024
Tímasetning: 09:00 - 16:00
Vinnustofugjald: 34.000 kr
Leiðbeinandi: Else Nielsen
 
Innifalið í vinnustofugjaldi

Fræðsluefni frá Else, sápur til að taka með heim, hádegisverður báða dagana, kaffi og te á vinnustofutíma.

Að búa til heimagerðar sápur er skemmtilegt og umhverfivænt handverk. Það besta við heimagerðar sápur er að stjórna hvaða hráefni sett er í sápurnar. Í vinnustofunni fá þátttakendur að kynnast heimi sápugerðar. Lögð verður sértök áhersla að kynna hvaða náttúrlegu efni er best að nota. Farið er vel yfir öryggisþætti, undirbúning fyrir sápugerð fyrir heimavinnslu, meðhöndlun hráefna og gerð uppskrifta. Þátttakendur læra á helstu tæki og tól til sápugerð ásamt því að læra á sápureiknivél til að búa til eigin sápu uppskriftir. Þátttakendur gera tvær sápur eina með olíum úr jurtaríkinu og eina hreindýrasápu sem gefa um 2 x 8 sápustykki. Sýnikennsla í aðferðum við sápugerð ásamt verklegri þátttöku þar sem hver einn æfir sig á sápureiknivél undir handleiðslu Else.

 
Dvöl í Hallormsstaðaskóla
 
Til þess að kanna málin með laust herbergi í gistingu í skólanum, sendu línu á hskolinn@hskolinn.is. Allar upplýsingar um kostnað er að finna í gjaldskrá skólans undir heimavist.
 
 
Nánari upplýsingar eru í síma 471 1761 eða skrifið til hskolinn@hskolinn.is
 
Kannaðu þinn rétt á menntunar-, ferða- eða tómstundastyrk verkalýðsfélaga og fyrirtækja. Stéttarfélög geta beðið skólann um staðfestingu á þátttöku. Með því að gefa upp stéttarfélagið þitt hér að neðan veitir þú skólanum leyfi til að senda staðfestingu um þátttöku til félagsins.

GPS punktar

N65° 5' 42.460" W14° 44' 17.682"

Staðsetning

Hallormsstaðaskóli

Sími

Fleiri viðburðir