Fara í efni

Hofskirkja

Prestsetrið á Hofi hefur skipað stóran sess í sögu Vopnafjarðar frá upphafi, bæði sem stórbýli og höfðingjasetur. Þar var höfuðstaður Hofverja. Hofverjar var ætt sem fór með annað tveggja Goðorða í Vopnafirði á 10. öld. Á Hofi bjó einnig eini prestvígði höfðinginn í Vopnafirði á 12. öld, Finnur Hallsson. Minnisvarði um Vopnfirðingasögu stendur við afleggjarann að Hofi.  

Talið er að fyrsta kirkjan á Hofi hafi verið byggð stuttu eftir kristnitöku. Kirkjan sem nú er í notkun var byggð árið 1901 en hún tók við af torfkirkju frá miðöldum. Hönnuður hennar var Björgólfur Brynjólfsson frá Skjöldólfsstöðum í Breiðdal. Kirkjan stendur í Hofskikrjugarði, fallegum garði sem býður skemmtilegt útsýni yfir Hofsárdalinn. 

Hofskirkja

Prestsetrið á Hofi hefur skipað stóran sess í sögu Vopnafjarðar frá upphafi, bæði sem stórbýli og höfðingjasetur. Þar var höfuðstaður Hofverja. Hofver

Minnisvarði um Vopnfirðingasögu

Vopnfirðingasaga er ein af bókum Íslendingasagnanna. Talið er að hún hafi verið rituð á fyrri hluta 13. aldar (1225-1250) og gerist hugsanlega á tímab
Ferðaþjónustan Síreksstöðum

Ferðaþjónustan Síreksstöðum

Síreksstaðir eru í Sunnudal, litlum og friðsællum dal inn af Hofsárdal. í Vopnafirði. Þar er frístandandi gistihús og tvö 32 ferm sumarhús í boði fyri
Þverárgil

Þverárgil

Þverárgil er einstaklega fallegt gil þar sem sjá má litríkt líparít, súrt innskotsberg frá gamalli megineldstöð, sem stingur skemmtilega í stúf við an