Fara í efni

Teigarhorn

Teigarhorn við Berufjörð er þekkt annars vegar fyrir merkilegar jarðmyndanir og hins vegar atvinnu- og menningarsögu. Jörðin öll var friðlýst sem fólkvangur árið 2013 og var þá friðlýst náttúruvætti innan fólkvangsins einnig stækkað. Á Teigarhorni er heilsárslandvarsla og unnið er að uppbyggingu sem raskar ekki svæðinu.

Við Teigarhorn er einn merkasti fundarstaður geislasteina (zeólíta) í heiminum og tengist myndun þeirra miklu berggangakerfi frá Álftafjarðareldstöðinni. Af geislasteinum sem þar finnast má nefna skólesít, stilbít, epistilbít, mordenít, laumontít og heulandít. Þar finnast auk þess aðrar steindir, s.s. seladónít, ópall, kalsedón, bergkristall, kalsít og silfurberg. Geislasteinar frá Teigarhorni hafa verið notaðir í ýmsar rannsóknir í meira en 200 ár. Þar á meðal eru lýsingar á kristalformum, efnasamsetningu, innri byggingu kristalla og ljósfræði, og eru sumar þeirra meðal fyrstu lýsinga á viðkomandi steindum. Sýni frá Teigarhorni voru seld til safna víða um heim á seinni hluta 18. aldar, en síðan 1976 hafa helstu fundarstaðir verið friðlýstir sem náttúruvætti.

Á Teigarhorni stendur Weywadthús sem byggt var af Níels P.E. Weywadt á árunum 1880-1882, en hann var faktor í verslun Örums og Wulff á Djúpavogi. Weywadthús hefur frá 1992 verið hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands, sem hefur annast endurgerð þess. Dóttir Níels, Nicoline Weywadt, var fyrst íslenskra kvenna til að nema ljósmyndun og starfrækti ljósmyndastofu á Teigarhorni. Nicoline er auk þess talin hafa átt fyrstu saumavél á Austurlandi.

Teigarhorn

Teigarhorn

Teigarhorn við Berufjörð er þekkt annars vegar fyrir merkilegar jarðmyndanir og hins vegar atvinnu- og menningarsögu. Jörðin öll var friðlýst sem fólk
Hálsaskógur

Hálsaskógur

Hálsaskógur er á Búlandsnesi, skammt vestan við Djúpavog. Skógurinn er afar skemmtilegur en hann hefur verið grisjaður og þar settar upp trjátegundame
Adventura ehf.

Adventura ehf.

Adventura er lítið gistiheimili og ferðaskrifstofa í Hamarsfirði í Djúpavogshreppi. Meðal þeirra ferða sem aðstandendur Adventura bjóða upp á eru nátt
Eggin í Gleðivík

Eggin í Gleðivík

Eggin í Gleðivík er útilistaverk eftir Sigurð Guðmundsson ( f.1942 ). Þetta eru 34 eftirmyndir eggja varpfugla sem verpa í nágrenni Djúpavogs. Verkið
Langabúð-Byggðasafn - Ríkarðssafn

Langabúð-Byggðasafn - Ríkarðssafn

Langabúð er reist á grunni eldra húss og þar sem Langabúð stendur hefur verið verslun frá árinu 1589 er Þýskir kaupmenn frá Hamborg hófu verslunarreks
Við Voginn

Við Voginn

Matvöruverslun, veitingasala og kaffihús. Úr veitingasal geta gestir notið útsýnis yfir smábátahöfnina.
Djúpivogur

Djúpivogur

Á syðsta hluta Austurlands tekur fólk lífinu rólega. Hinn einstaklega fallegi bær Djúpivogur er hluti af Cittaslow (alþjóðlegt tengslanet bæja þar sem
Hótel Framtíð

Hótel Framtíð

Hótelið hefur í heild til umráða 42 herbergi. 18 herbergi búin öllum helstu þægindum, baðherbergi, síma og sjónvarpi. Einnig býður hótelið uppá 24 her
Tjaldsvæðið Djúpavogi

Tjaldsvæðið Djúpavogi

Á Djúpavogi er mjög gott tjaldsvæði sem er staðsett í kjarna bæjarins, öll þjónusta í bænum í innan við 500 m fjarlægð frá tjaldsvæðinu. Miklir mögule
Sundlaugin Djúpavogi

Sundlaugin Djúpavogi

Íþróttamiðstöð Djúpavogs er vel búin tækjum og búnaði til hreyfingar og heilsueflingar. Vel búinn íþróttasalur, sundlaug með pottum, þreksalur og saun

Blábjörg í Berufirði

Norðan megin í Berufirði er áhugavert náttúrufyrirbæri í fjöruborðinu. Skammt austan við bæinn Fagrahvamm, rís sérkennilegur klettahamar sem er ólíkur
Búlandstindur

Búlandstindur

Búlandstindur er 1069 metra hátt basaltfjall í Djúpavogshreppi og er talinn vera um 8 milljón ára gamall. Búlandstindur er tákn Djúpavogs enda þykir f
Berunes Restaurant

Berunes Restaurant

Í stórfenglegum fjallasal við Berufjörðinn gengt Djúpavogi munu matreiðslumenn okkar galdra fram girnilega og gómsæta rétti innblásna úr matarkistu au
Svörtu sandarnir við Djúpavog

Svörtu sandarnir við Djúpavog

Rétt fyrir utan flugvöllinn á Djúpavogi eru hinir svonefndu Svörtu sandar. Þeir eru sannkölluð náttúruperla, en fuglalífið þar er algjörlega einstakt.
Berunes

Berunes

Á Berunesi er að finna eitt elsta og þekktasta hostelið í HI keðjunni auk tjaldsvæðis. Vinsæli veitingastaðurinn Berunes Restaurant er opinn yfir hásu

Djáknadys

Djáknadys er laus grafhýsi (dys) norðan megin við Hamarsfjörð. Sagan segir að á þessum stað hafi presturinn á Hálsi og djákninn á Hamri hist og þeir b

Aðrir (1)

Starmýri cottages Starmýri 2 766 Djúpivogur 847-4872