Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Gönguskíði á Austurlandi

Gönguskíði eru frábær leið til að njóta vetrarins á Austurlandi. Svæðið býður upp á fjölbreyttar leiðir sem henta bæði byrjendum og lengra komnum og er því tilvalið fyrir einstaklinga, vinahópa og fjölskyldur sem vilja hreyfa sig úti í fersku vetrarlofti. Hér að neðan má finna gagnlegar upplýsingar um gönguskíðasvæði á Austurlandi, búnað, leigu og hugmyndir um hvernig hægt er að gera vetrarferðina enn notalegri með góðri gistingu, veitingum og slökun í heitum böðum eftir daginn.

Það er eitthvað einstakt við að renna á gönguskíðum um snæviþakta heiði í kyrrð og tæru vetrarlofti. Náttúran tekur á móti manni hvort sem leiðin liggur upp á víðáttumiklar heiðar, inn í snævi hulinn skóg eða um fallegt fjallaumhverfi þar sem útsýnið teygir sig til allra átta.

Gönguskíðamennska á Austurlandi er fullkomin útivist og skemmtilegt fjölskyldusport sem hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Það geta allir fundið leið við sitt hæfi, rólegar og aðgengilegar brautir fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref og meira krefjandi fyrir þá sem vilja taka vel á því. Í sameiginlegri útiveru skapast dýrmætar stundir þar sem hreyfing, leikgleði og náttúrupplifun fara saman.

Að gera sér ferð austur er góð leið til að breyta um umhverfi og njóta vetrarins. Eftir góðan dag í fersku fjallaloftinu er notalegt að slaka á í heitum böðum eða sundlaug og njóta góðs matar.

Á Austurlandi er hægt að sameina hreyfingu, náttúru og vellíðan í einni heildstæðri og eftirminnilegri vetrarferð.

Ljósmyndari: Ragnhildur Aðalsteinsdóttir 

Praktískar upplýsingar

Fylgjast þarf með veðurspá og færð áður en lagt er af stað.

Búnaður, hvað þarf?

Gönguskíði, skíðaskór og bindingar
Skíðastafi í réttri lengd (almenn regla: stafir upp að handarkrika).
Fyrir þá sem vilja fara utan spora þarf sérstök utanbrautargönguskíði.

Fyrir byrjendur

Fyrir þá sem eru að byrja er gott að velja stuttar og tiltölulega flatar leiðir til að ná tökum á grunninum. Tæknin skiptir máli og getur gert upplifunina bæði auðveldari og ánægjulegri. Það borgar sig því að gefa sér tíma til að læra rétt handtök og jafnvægi.

 

Leiga á búnaði

 

Gistihúsið Egilsstöðum: Skíði, skór og stafir, allar stærðir af skóm og nokkrar stærðir af skíðum.
Lake Hotel – Egilsstöðum

Netfang: hotel@gistihusid.is

Sími: +354 471-1114

Heimilisfang: Egilsstöðum 1-2, 700 Egilsstaðir

 

Oddsskarð: Einhver búnaður til leigu en best að hafa samband fyrirfram fyrir frekari upplýsingar.
Skíðamiðstöð Austurlands, Oddsskarði | Visit Austurland

Netfang: oddsskard@fjardabyggd.is

Sími: 853-1465

Heimilisfang: Oddskarð , 735 Eskifjörður

 

Stafdalur : Til leigu allur búnaður fyrir gönguskíði, ýmsar stærðir af skíðum, skóm og stöfum.*
Skíðasvæðið í Stafdal | Visit Austurland

Netfang: stafdalur@stafdalur.is

Sími: 649-2877/878-1160

Heimilisfang: Stafdalur ,710 Seyðisfjörður

 

Ljósmyndari: Ingvi Örn Þorsteinsson

Hvar er hægt að fara á gönguskíði?

Oddsskarð
Skíðasvæðið í Oddsskarði leggur gönguskíðaspor þegar aðstæður leyfa og veður er hagstætt. Sporin liggja um fallegt fjallaumhverfi. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu svæðisins.

Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu svæðisins.

Stafdalur
Skíðasvæðið í Stafdal leggur gönguskíðaspor þegar aðstæður leyfa og veður er hagstætt. Sporið er í fallegu fjallaumhverfi og nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu svæðisins

Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu svæðisins.

Fjarðarheiði
Ef ekki tekst að leggja spor í Selskógi er reynt að útbúa gönguskíðaspor á Fjarðarheiði.
Upplýsingar eru birtar á „Egilsstaðasporið“ á Facebook

Fjarðarheiði hentar einnig afar vel fyrir þá sem stunda utanbrautargönguskíði.

Selskógur

Selskógur er útivistarsvæði Austan Egilsstaða handan við Eyvindará.
Yfir vetrartímann eru lögð gönguskíðaspor í skóginum þegar aðstæður leyfa, sem eru upplýst að hluta til á kvöldin. Hægt er að velja um misstóra hringi eftir getu og áhuga, bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

Upplýsingar eru birtar á Egilsstaðasporið á Facebook í hvert sinn sem búið er að leggja spor.

Fjarðabyggð

Hægt er að fylgjast með hópnum „Gönguskíði í Fjarðabyggð“ á Facebook þar sem birtar eru upplýsingar ef lagt hefur verið gönguskíðaspor

 

Heit böð og sundlaugar

Vetrarheimsókn í Vök Baths er sannkallaður hápunktur utan háannatíma. Með færri gestum eru fljótandi laugar kyrrar og afslappaðar. Hlýja vatnið myndar fallega mótsögn við ferskt loftið, á meðan útsýnið yfir vatnið breytist með birtu og veðri. 

Musterið Spa í Blábjörgumá Borgarfirði eystri býður upp á einstaka vellíðunarupplifun í náttúrulegu umhverfi. Þar er hægt að njóta bjórbaða, þarabaða, gufu og slökunar í heitum og köldum pottum. Náttúrulegar meðferðir með nærandi innihaldsefnum róa líkama og sál og skapa kyrrláta og endurnærandi stund.

Baðhúsið Spa er að finna á jarðhæð Gistihússins- Lake Hotel Egilsstaðir. Spa með heitri smálaug, mildri sánu sem sameinar kosti eimbaðs og gufubaðs, köldum potti og hvíldarsvæði innan og utan dyra. Einkar fallegt útsýni er yfir Lagarfljót frá heilsulindinni.

Að auki er alltaf gott að koma við í sundlaugum Austurlands, sem eru ómissandi hluti af íslenskri vetrarmenningu. Þar má finna hlýja potta, notalegt andrúmsloft og afslappaða stemningu – fullkomið til að hita sig upp, hitta heimamenn og njóta rólegra augnablika í lok dags.

Á Austurlandi er fjölbreytt úrval gistimöguleika þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og tilvalið að prófa nýja veitingastaði.

Ljósmyndari: Ragnhildur Aðalsteinsdóttir 

Ljósmyndari: Gunnar Freyr Gunnarsson

 

 

Hvar er hægt að gista? Gististaðir | Visit Austurland

Hvar er hægt að borða? Veitingahús | Visit Austurland