Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hvernig verður sólmyrkvinn austan við almyrkvaslóðina?

Fólk í almyrkvaslóðinni upplifir fegurstu sýninguna en austan hennar verður djúpur og áhugaverður deildarmyrkvi.

Hver er munurinn á almyrkva og deildarmyrkva? Þetta er ein algengasta spurningin sem við fáum um sólmyrkva. Munurinn er dagur og nótt, himinn og haf. Meiri en þú getur ímyndað þér. Meira að segja 99,99% deildarmyrkvi er gerólíkur almyrkva.

Almyrkvi er eins og að vera á tónleikum með uppáhalds hljómsveitinni sinni, fremst við sviðið, og sveitin tekur óskalögin þín. Deildarmyrkvi er eins og að hlusta heima með ekkert sérstaklega góðum heyrnartólum. Skemmtilegt, ekki spurning, en ekki næstum sama einstaka upplifun.

Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 upplifir fólk í almyrkvaslóðinni langfegurstu og tilkomumestu sýninguna. Austan hennar verður djúpur og áhugaverður deildarmyrkvi sem full ástæða er til að fylgjast grannt með og gera sem mest úr.

Af þéttbýlissvæðum á Íslandi er deildarmyrkvinn minnstur á Neskaupstað (95,15%) en mestur á Hvanneyri, í Mosfellsdal og Þorlákshöfn (99,99%) og Búðardal (99,97%). Fólk næst slóðinni er eindregið hvatt til þess að koma sér inn í hana.

Smelltu á gagnvirka kortið hér undir til að sjá hversu mikill myrkvinn er heima hjá þér. Skyggða svæðið á kortinu sýnir hvar almyrkvi sést frá Vestfjörðum og suður á Reykjanesskaga. Austan við þetta svæði sést verulegur deildarmyrkvi sem fer minnkandi því austar sem farið er.

Nota þarf sólmyrkvagleraugu allan tímann

Á svæðinu austan við almyrkvaslóðina þarf að nota sólmyrkvagleraugu allan tímann á meðan fylgst er með deildarmyrkvanum – líka þegar myrkvinn er í hámarki því tunglið hylur ekki alla sólina. Ekki er öruggt að horfa óvarin á sólina þótt hún sé 99,99% deildarmyrkvuð. Innan í almyrkvaslóðinni eru gleraugun tekin af við almyrkvann og hans notið með berum augum.

Hvað upplifir fólk austan við almyrkvann?

Þegar myrkvinn er í hámarki frá um það bil 17:40 til 18:00 12.ágúst 2026 upplifir fólk:

  • Að lofthiti lækkar, þú finnur fyrir myrkvanum á eigin skinni
  • Að skuggar verða skarpari og loðnari
  • Einstaka silfurlitaða rökkurbirtu
  • Að verulega dimmir, mest næst slóðinni en minnst austast á landinu
  • Venus og Júpíter gætu sést þegar myrkvinn er í hámarki næst almyrkvaslóðinni
  • Næst slóðinni sér fólk dökkan skugga tunglsins færast yfir Vesturland

Á Austurlandi verður deildarmyrkvinn ekki ósvipaður þeim sem við upplifðum föstudagsmorguninn 20. mars árið 2015. Í myndskeiðinu sem finna má hér ,sést vel hversu mjög dimmdi. Hafðu í huga að sjáöldur augna okkar bregðast við birtuminnkuninni með því að stækka og safna meira ljósi. Okkur finnst því bjartara en í raun og veru er.

 

Allar upplýsingar um Sólmyrkvann má finnna á solmyrkvi2026.is