Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Nýr vefur Áfangastaðaáætlunar Austurlands opnar

Stórurð- Ljósmyndari: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Stórurð- Ljósmyndari: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Markaðsstofur landshlutanna hafa tekið höndum saman um samræmda framsetningu áfangastaðaáætlana og nú er Áfangastaðaáætlun Austurlands komin í loftið! 

Efnisflokkar vefsins eru þrír:

  • Áfangastaðurinn: Almennar upplýsingar um áfangastaðinn Austurland ásamt markaðssetningu og aðgerðum.
  • Þróun: Framtíðarsýn ferðaþjónustunnar og upplýsingar um þau verkefni sem unnið er að til að færa áfangastaðinn nær markmiðum sínum.
  • Uppbygging: Staðir sem sveitarfélög, í samráði við landeigendur og aðra hagaðila, leggja áherslu á að efla sem áfangastaði ferðamanna.

Nýtist stjórnendum, stofnunum og sveitarfélögum

Áfangastaðaáætlun styður sveitarfélög við stefnumótun, skipulag og ákvarðanatöku. Jafnframt geta stofnanir nýtt vefinn til að samræma stefnu og aðgerðir á sviði ferðamála. Ferðaþjónustuaðilar fá auk þess betri möguleika til þátttöku, samráðs og samstarfs. Með þessari nýju framsetningu hefur Áfangastaðaáætlun Austurlands orðið gagnvirkari og lifandi vettvangur fyrir þann fjölbreytta hóp sem nýtir hana.

 

Víknaslóðir. Ljósmyndari: Þráinn Kolbeinsson

 

 

Skoða Áfangastaðaáætlun Austurlands