Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Menningarsumar á Austurlandi 2026

Sumarið á Austurlandi 2026 lofar einstökum upplifunum fyrir alla aldurshópa. Í þessari grein má finna yfirlit yfir fjölbreytta viðburði sem lífga upp á svæðið, allt frá hátíðum og tónleikum til áhugaverðra safna og sýninga.
Bræðslan á Borgarfirði Eystri. Ljósmyndari: Hafþór Snjólfur Helgason
Bræðslan á Borgarfirði Eystri. Ljósmyndari: Hafþór Snjólfur Helgason

Sumarhátíðir 

Merktu þessar dagsetningar í dagatalið þitt!

1-17 Maí – Ljósmyndadagar á Seyðisfirði
Ljósmyndadagar á Seyðisfirði 2026 fagna ljósmyndun út frá staðbundinni þekkingu og samfélaginu. Þema hátíðarinnar í ár, „Staðarvíska“, varpar ljósi á tengsl milli staðar, sköpunar og fólks. Á dagskránni er ljósmyndasýning eftir Ásgeir Jón Emilsson (Geira), unnin í samstarfi við Skaftfell og Tækniminjasafn Austurlands. Á sextán dögum býður hátíðin upp á vinnustofur undir leiðsögn alþjóðlegra sérfræðinga, auk opinna og gjaldfrjálsra viðburða fyrir almenning, þar á meðal sameiginlegan kvöldverð, kvikmyndasýningar, listamannaspjall og samvinnuverkefni þar sem unnið er með portrettmyndir.

 1-20 Júní - Innsævi
Menningarstofa Fjarðabyggðar vinnur nú af krafti að undirbúningi listahátíðarinnar Innsævis, sem fram fer dagana 1.–20. júní 2026. Hátíðin verður haldin víðs vegar um Fjarðabyggð, frá Breiðdalsvík til Mjóafjarðar og allt þar á milli, og verður heildardagskrá kynnt í maí. Áhersla Innsævis verður á að virkja alla bæjarkjarna Fjarðabyggðar með fjölbreyttum viðburðum sem dreifast yfir tímabilið, með mismunandi þunga á ólíkum stöðum og tímum. Menningarstofa leiðir skipulag og undirbúning hátíðarinnar í nánu samstarfi við listamenn, samstarfsaðila og íbúa. 

7 Júní – Sjómannadagurinn

17 Júní - Þjóðhátíðardagur Íslendinga

Sumarsólstöðu- og götuhátíð á Seyðisfirði

19 Júní- Sumarsólstöðu- og götuhátíð á Seyðisfirði
Það gleður okkur að bjóða þér að taka þátt í að skapa enn eina líflega og eftirminnilega sumarsólstöðuhátíð á Seyðisfirði.Hátíðin er innblásin af sumarsólstöðuhátíðum ólíkra menningarheima og markmið hennar er að skapa tækifæri fyrir íbúa Austurlands til að hittast og deila list sinni, handverki, staðbundnum vörum og mat með öðrum. Hátíðin er einstakur viðburður sem sameinar samfélagið á Austurlandi í fögnuði yfir sumarsólstöðum. Hægt að fylgjast með hér.

20-27 Júní – Gönguvikan í Fjarðabyggð 
Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð er með stærstu útivistarviðburðum ársins. Í boði er fjöldi viðburða þá viku, bæði gönguferðir og skemmtanir, en vikan er ekki síður skilgreind sem gleðivika. Áhersla er lögð á fjölbreyttar gönguleiðir við allra hæfi, s.s. fjölskyldugöngur, sögugöngur og göngur fyrir alvöru fjallagarpa og á kvöldin er brugðið á leik með kvöldvökum og sjóræningjapartíum.

Barðsnes.Ljósmynd: Þráinn Kolbeinsson.

20 Júní – Skógardagurinn mikli
Skógardagurinn mikli, árleg skógarhátíð Félags skógarbænda á Austurlandi, Barra, Héraðs- og Austurlandsskóga, Skógræktarfélags Austurlands og Skógræktar ríkisins, er haldinn í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi. Skógardagurinn mikli er fjölskylduhátíð í Hallormsstaðarskógi með Íslandsmóti í skógarhöggi, grillveislu, ketilkaffi og skemmtidagskrá dagskrá.

4 Júlí – Dyrfjallahlaup
Dyrfjallahlaupið býður hlaupurum af öllum getustigum að upplifa einstaka náttúru Víknaslóða á nýjan hátt. Þessi ógleymanlegi viðburður fer fram í einstaku umhverfi hinna svipsterku Dyrfjalla. Hlaupið er fyrir alla, hvort sem þú ert vanur fjallahlaupari, náttúruunnandi eða ævintýragjarn byrjandi. Þátttakendur geta valið milli mismunandi vegalengda, allt frá krefjandi 50 km ULTRA fjallahlaups yfir í styttri, fjölskylduvænni leiðir.

Dyrfjallahlaupið er ekki bara hlaup – þetta er upplifun. Náttúra, þol, þrautseigja og góðir vinir sameinast í einni stórkostlegri helgi með frábærri dagskrá. Hvort sem þú kemur til að keppa eða fagna, þá er Dyrfjallahlaupið atburður sem þú vilt ekki missa af.

Dyrfjallahlaupið. Ljósmyndari: Þorsteinn Roy

4 Júlí- Hernámsdagurinn 
Hernámsdagurinn er árleg bæjarhátíð Reyðfirðinga og er haldinn fyrsta laugardag í júlí til þess að minnst hernámi Breta á Reyðarfirði 1. júlí 1940. Á dagskrá hátíðarinnar eru söguganga um bæinn og viðburðir í Íslenska stríðsárasafninu, svo sem tónlistaratriði, kynningar á nýjustu rannsóknum á stríðsárunum og listasýningar. Í tilefni dagsins býðst gestum gjaldfrjáls aðgangur að safninu. Árið 2026 verður núverandi grunnsýning safnsins kvödd þar sem ný grunnsýning rís í nýju sýningarhúsnæði á vormánuðum 2027.

 9-12 Júlí – Støð í Stöð
Støð í Stöð í er fjölskylduhátíð sem haldin verður á Stöðvarfirði í sumar. Hátíðin hefur margt upp á að bjóða og má meðal annars nefna hverfahátíðir, listasýningar, myndasýningu, fullt af lifandi tónlist, böll og skemmtiatriði og leiki fyrir börn svo eitthvað sé nefnt.

9-12 Júlí– Vopnaskak
Vopnfirðingar halda árlegu bæjarhátíðina Vopnaskak hátíðalega fyrstu helgina í júlí. Boðið er upp á fjölbreytta og fjölskylduvæna dagskrá þar sem lögð er áhersla á að allir geti skemmt sér vel.

15-19 Júlí– Franskir dagar á Fáskrúðsfirði
Franskir dagar eru fjölskylduvæn sumarhátíð, með frönsku ívafi, sem haldin er á Fáskrúðsfirð. Fáskrúðsfjörður er stundum kallaður franski bærinn og ekki af ástæðu lausu. Franskir skútusjómenn voru snar þáttur í bæjarlífinu á 18. og 19. öld og reyndar alveg fram á 20. öldina. Það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem frönsku skútunum fer fækkandi í firðinum. Tengslin við gömlu sjávarbæina á norðurströnd Frakklands eru enn sterk. Til marks um það eru götuskiltin á Fáskrúðsfirði bæði á íslensku og frönsku.

Franskir dagar á Fáskrúðsfirði.

25 Júlí – Bræðslan in Borgarfjörður eystri 
Bræðslan er tónlistarhátíð, haldin af Borgfirðingum fyrir alla sem elska tónlist og vilja eiga notalega samverustund með fjölskyldu og vinum. Bræðslan opnar dyr sínar eitt kvöld á ári, síðasta laugardagskvöldið í júlí, en í vikunni fyrir Bræðslu bjóða Borgfirðingar upp á ýmiskonar viðburði. Tónlistin á Bræðslunni er ætlað að höfða til allra í fjölskyldunni. Bræðslan fagnar ungu tónlistarfólki í bland við eldri hetjur og allt í beinni á Rás 2 þar sem íslensk tónlist á heima.

31 Júlí - 2.Ágúst Neistaflug
Fjölskylduhátíð í Neskaupsstað sem haldin er um verslunarmannahelgina.

13-16 Ágúst Útsæðið
Útsæðið er bæjarhátíð fyrir alla fjölskylduna þar sem heimamenn og gestir koma saman og njóta samveru og góðrar stemningar. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg: kvikmyndasýningar, froðupartý í sundlauginni, tónleikar, pub quiz, stærsta grill landsins þar sem 10 heil lömb eru grilluð fyrir gesti, hoppukastalar, dansleikur, kaffi og sýningar á gömlum kvikmyndum frá Eskifirði og nágrenni.

Tónleikar

Auk sumarhátíðanna eru einnig nokkrar tónleikaraðir sem vert er að kynna sér og fylgjast með.

BRJÁN: Blús, rokk og jazz klúbburinn á Nesi - Blús, rokk og djassklúbbur í Neskaupsstað sem býður upp á fjölbreytta tónleika. Best að fylgjast með dagskránni hér.

Egilsstaðakirkja- Ýmsir tónleikar verða haldnir yfir sumartímann. Dagskrá verður auglýst síðar.

Á Eskifirði býður Tónlistarmiðstöð Austurlands upp á ýmisa spennandi viðburði sem haldnir eru í Eskifjarðarkirkju.Best að fylgjast með dagskránni hér.

Upplifðu tónleikaröðina í Bláu kirkjunni  á Seyðisfirði, sem fer fram á miðvikudagskvöldum í júlí í fallegu bláu kirkjunni í bænum. Njóttu fjölbreyttrar dagskrár með þjóðlagahljómsveitum, fusion-tónlist, klassískri tónlist ofl, þar sem bæði íslenskir og alþjóðlegir listamenn koma fram í stórkostlegu umhverfi við fjörðinn.
 Fjölbreytt dagskrá sem best er að fylgjast með hér.

Kíktu á það sem er í gangi hjá Tehúsinu, ekki bara gistiheimili heldur líka notalegt kaffihús/bar og tónleikastaður. Best að fylgjast með dagskránni hér.

Bláa Kirkjan á Seyðisfirði.

Menningarstöðvar 

Það er alltaf þess virði að kanna hvað menningarmiðstöðvar á staðnum hafa á dagskrá þegar þú ert á ferðinni. Þar getur verið allt frá listsýningum til tónleika, leiksýninga og oft frábær matur og stemning. Facebook-síður slíkra staða eru frábær uppspretta nýjustu upplýsinga.

Sláturhúsið á Egilsstöðum
Sláturhúsið er sviðslistamiðstöð staðsett í nýuppgerðu sláturhúsi á Egilsstöðum. Þar fer fram fjölbreytt starfsemi, allt frá leikhúsi, dansi og gjörningum til myndlistarsýninga og er húsið mikilvægur vettvangur fyrir sjónlistir með spennandi sýningum allt árið um kring. Einnig eru þar reglulegir jazztónleikar ásamt fjölbreyttum tónlistarviðburðum.

15.05 - 25.05 Vor / Wiosna Pólsk listahátíð
21.05 - 30.05 A Symposium of Writers, Art, and a Poetry Festival
17.06-15.09 Sumarsýning Wiola Ujazdowska / Melancholia
 

Auk þess er Kjarvalssýningin opin allt árið og tileinkuð Jóhannes S. Kjarval, einum ástsælasta myndlistarmanni Íslands, sem hafði sterk tengsl við Austurland. Sýningin segir frá lífi hans og verkum og varpar ljósi á tengingu hans við svæðið.

Menningarstofa Fjarðabyggðar 
Staðsett í Neskaupstað og skipuleggur ýmsa viðburði yfir sumartímann. Gott er að fylgjast með dagskrá og frekari upplýsingum hér

Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði
Nýjasta menningarmiðstöðin á Austurlandi, staðsett í gömlu frystihúsi í Stöðvarfirði. Þar hefur verið byggð upp fjölbreytt aðstaða fyrir skapandi greinar, meðal annars verkstæði fyrir málm, tré og keramik, prentsmiðja, fullbúið hljóðver Stúdíó Síló og 115 fermetra tónleikasalur fyrir viðburði og æfingar.

Skaftfell Art Center á Seyðisfirði
Heldur úti metnaðarfullri dagskrá samtímalistasýninga, alþjóðlegri gestalistadvöl, listfræðslu allt árið um kring og fjölbreyttum menningarviðburðum og opinberum verkefnum. Þar er einnig rekið prentverkstæðið Prentverk Seyðisfjörður.

 

Skaftfell. Ljósmynd: Jessica Auer.

Á meðan þú ert á Seyðisfirði er vel þess virði að kíkja niður á Skaftfell Bistro, sem er staðsett á neðri hæð Skaftfell Art Center. Þar er notalegur, listrænn veitingastaður og bar sem býður upp á árstíðabundna bistró-rétti. Yfir sumartímann má oft finna þar lifandi tónlist eða plötusnúð þegar líður á kvöldið.

Söfn og sýningar

Söfn á Austurlandi segja frá sögu og náttúru svæðisins, ásamt þeirri skapandi arfleifð sem hefur sprottið af innblæstri fólks sem hér hefur dvalið. Þar má kafa í sjósögur og verslunarsögu, kynnast eftirminnilegum persónum úr heimabyggð og einstöku dýralífi, auk þess að skoða áhugaverð jarðfræðileg fyrirbæri.
Slíkir staðir veita dýpri skilning á því hvað einkennir Austurland og varpa ljósi á það sem gerði svæðið sérstakt fyrr á tímum.

Bustarfell- Sérstaða safnsins felst að miklu leyti í því hversu vel það miðlar breyttum búskapar og lifnaðarháttum fólks allt frá því fyrir 1770 til þess  er hætt var að búa í bænum árið 1966. Í safninu eru nú yfir eitt þúsund munir sem hver og einn á sína sögu og sína "sál" sem gerir safnið að þeim einstaka fróðleiks- og afþreyingarbrunni sem það er.

Burstafell. Ljósmyndari: Jessica Auer.


Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum-
Minjasafn Austurlands varðveitir minjar um sögu, menningu og samfélag landshlutans. Á safninu eru tvær grunnsýningar, annars vegar sýningin Hreindýrin á Austurlandi og hins vegar sýningin Sjálfbær eining. Þar fyrir utan eru settar upp margvíslegar smærri sýningar yfir árið auk sérsýninga. Nú stendur yfir sérsýning sem ber yfirskriftina Landnámskonan.  

Langabúð á Djúpavogi- Langabúð er reist á grunni eldra húss og þar sem Langabúð stendur hefur verið verslun frá árinu 1589 er Þýskir kaupmenn frá Hamborg hófu verslunarrekstur á Djúpavogi. Langabúð hýsir safn Ríkarðs Jónssonar, ráðherrastofu Eisteins Jónssonar og minjasafn. Þar er einnig rekið yndælis kaffihús ásamt minjagripasölu.

Franska safnið á Fáskrúðsfirði- Safnið er til húsa í tveimur reisulegum byggingum sem Frakkar reistu upp úr aldamótunum 1900 eða Læknishúsinu og Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði. Meginsýning safnsins er þó í hvorugu húsanna, heldur í undirgöngum sem tengja þau saman.

Sjóminjafsafnið á Eskifirði- Í safninu eru munir sem tilheyra sjósókn og vinnslu sjávarafla. Einnig eru þar verslunarminjar og hlutir sem tilheyra ýmsum greinum iðnaðar og lækninga frá fyrri tíð. Sjóminjasafnið er staðsett í gömlu verslunarhúsi, Gömlu búð, sem byggt var 1816. Safnið þykir einstaklega skemmtilega framsett, fjölbreytt og fróðlegt heim að sækja. Það er á tveimur hæðum.

Stríðsárasafnið á Reyðarfirði- Gestir Íslenska stríðsárasafnsins hverfa rúm 70 ár aftur í tímann, allt aftur til 5. áratugarins þegar heimsstyrjöldin síðari geisaði. Sýningar safnsins gera þessu tímabili vönduð skil, bæði út frá sjónarhóli hins almenna hermanns í setuliði bandamanna og íbúa Reyðarfjarðar.

Myndlistasafn Tryggva Ólafssonar

Safnahúsið á Norðfirði- Húsið sem á sér merka sögu hefur að geyma þrjú glæsileg söfn undir sama þaki.
Myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar
Tryggvi Ólafsson er fæddur árið 1940 á Norðfirði. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1960-61 og við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn 1961-66. Tryggvi er meðal þekktustu núlifandi myndlistarmanna Íslendinga.

Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar
Á safninu eru áhugaverðir hlutir sem tengjast sjávarútvegi, bátasmíði, járn- og eldsmíði og einnig gömlum atvinnuháttum á Íslandi. Þarna er að finna eftirlíkingu af eldsmiðju föður Jósafats þar sem Jósafat lærði og byrjaði starfsferil sinn.

Náttúrugripasafnið í Neskaupstað
Safnið hefur að geyma flesta íslenska fugla auk fjölda flækinga ásamt ágætu fiskasafni með ýmsum sjaldséðum fiskum. Einnig eru í safninu ýmsir gripir af sjávarbotni, þar á meðal mjög gott safn skeldýra. Villtu íslensku spendýrin eiga sína fulltrúa á safninu og þar er einnig mjög gott steinasafn. Þá varðveitir safnið austfirskar plöntuvísindasafn og skordýrasafn.

 
Snæfellsstofa - Í Snæfellsstofu er sérlega áhugaverð og falleg sýning, Veraldarhjólið, sem fjallar um hringrás og mótun náttúrunnar. Sýningin leggur áherslu á samspil gróðurfars og dýralífs á austursvæði þjóðgarðsins. Við hönnun hennar var lögð áhersla á að börn gætu snert, lyktað og prófað sig á ýmsum sýningarmunum

Tækniminjasafnið á Seyðisfirði- Komdu á Seyðisfjörð og kynntu þér sýninguna „Búðareyri – saga umbreytinga“ sem staðsett er í gömlu Vélsmiðjunni. Á sýningunni nýtir safnið nýstárlegar margmiðlunarlausnir í bland við hefðbundna tækni til að segja fjölbreytta sögu samfélags og atvinnulífs á þeim hluta Seyðisfjarðarbæjar sem varð fyrir aurskriðum í desember 2020. Sýningin er fræðandi og fjölskyldumiðuð og hentar gestum á öllum aldri.

Í Hafnargarðinum, sem staðsettur er í miðjum bænum, er að finna útisýninguna „Konur starfa“. Þar kynnist þú merkilegri sögu og framsýni kvenna á Seyðisfirði á árunum 1880-1920. Á sýningunni skoðum við fjölbreytt störf kvenna og mikilvægi efnahagslegs framlags þeirra á miklum umbrotatímum á Seyðisfirði og Íslandi öllu.

Óbyggðasetur-Óbyggðasetrið er einstakur staður þar sem boðið er upp á fjölbreytta afþreyingu og fræðslu tengda óbyggðum Austurlands, heimilislegan veitingastað og gistingu í mögnuðu umhverfi. Lifandi sýning Óbyggðasetursins um ævintýri óbyggðanna hefur hlotið fjölda viðurkenninga og hentar gestum á öllum aldri. Gestir fá leiðsögn um sýninguna sem er fjölbreytt og sjónræn, skemmtileg og fræðandi. Auk sýningarinnar býður Óbyggðasetrið upp á ýmsa afþreyingu. Þar er meðal annars hægt að fara í fjölbreyttar gönguferðir, hestaferðir, stjörnuskoðun, prófa kláf og skoða eyðibýli. Til þess að toppa upplifunina er hægt að gista í bóndabæ frá miðri 20. öld.

Óbyggðasetur. Ljósmyndari: Micheal Neumann

Frekari innsýn í fortíðina

Lindarbakki- Lindarbakki er lítið fallegt torfhús í miðju Bakkagerði á Borgarfirði eystri. Húsið er vinsælt myndefni ferðamanna og ómissandi viðkomustaður þegar fjörðurinn er heimsóttur. Lindarbakki er upphaflega byggður árið 1899 en hlutar hans hafa verið endurbyggðir. 

Skriðuklaustur- Skriðuklaustur er merkur sögustaður í Fljótsdal, ekki síst þekktur fyrir stórhýsið sem rithöfundurinn Gunnar Gunnarsson (1889-1975) byggði þar árið 1939. Frá aldamótum hefur Gunnarshús verið opið sem menningar- og fræðasetur með fjölbreyttum viðburðum og sýningum. Skriðuklaustur er einnig þekkt fyrir klausturminjar en á 16. öld stóð þar munkaklaustur af Ágústínusarreglu. Rústir þess voru grafnar upp á árunum 2000-2012. MInjasvæðið er aðgengilegt allt árið, rétt neðan við Gunnarshús. Hægt er að fá leiðsögn um minjasvæðið en sýning um sögu klaustursins er í húsi skáldsins. Þar er einnig veitingastaðurinn Klausturkaffi. 

Skriðuklaustur. Ljósmynd: Jessica Auer.

Sænautasel -Sænautasel á Jökuldalsheiði er einstakur staður við friðsælt fjallavatn, Sænautavatn. Sænautasel er gamalt heiðarbýli en húsið var endurbyggt 1992 fyrir tilstuðlan Jökuldalshrepps og síðan hefur verið tekið þar á móti gestum á sumrin. Í Sænautaseli er hægt að fræðast um aðbúnað og lífsbaráttu þeirra sem bjuggu í heiðinni. Boðið er upp á leiðsögn um bæinn og sagðar sögur af fólkinu og búskaparháttunum á heiðarbýlum sem voru í byggð langt fram á 20. öld. Þar er hægt að fá léttar veitingar að þjóðlegum hætti.

Randulffs sjóhús á Eskifirði- Húsið var byggt um 1890 og var lengst notað sem síldarsjóhús en síðan Sjóminjasafnið eignaðist það hefur það tengst safnastarfi safnsins. Sjóhúsið er núna opið almenningi. Búið er að koma upp gestamóttöku í sjóhúsinu og þar er matsalur sem rúmar allt að áttatíu manns. Auk gestamóttöku og matsölu er hluti hússins nýttur til sýningarhalds á hlutum sem tengdir eru sjóhúsinu og þeirri starfsemi sem þar hefur verið í gegn um tíðina. Á efri hæðinni er verðbúð sjómannanna í sinni upprunalegu mynd og sýningarsalur.