Glóð er glæsilegur veitingastaður staðsettur á Hótel Valaskjálf. Á matseðlinum má finna fjölbreytt úrval rétta fyrir alla fjölskylduna – pasta, fisk, kjöt og auðvitað ekta ítalskar pizzur.
Pizzurnar eru bakaðar í ekta ítölskum pizzaofni og gerðar eftir hefðbundinni ítalskri aðferð, með úrvali af góðu hráefni.
Hvort sem þú ert að leita að góðri pizzu, fjölskyldumáltíð eða notalegum kvöldverði þá ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi á Glóð.