Skíðasvæði
Skíðasvæði
Oddsskarð á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Í fjallinu er toglyfta sem fer upp í 840 metra hæð yfir sjávarmál, þaðan sem blasir við ægifagurt útsýni yfir Reyðarfjörð. Á skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu. Þá býður skíðamiðstöðin upp á Stubbaskóla fyrir yngstu börnin.
Í boði er að leigja skíði, skó og stafi ásamt snjóbretti og brettaskóm á svæðinu.
Allar helstu upplýsingar um skíðasvæðið í Oddsskarði má finna Hér
